Hvað
Mínir nemendur gefur kennurum aðgang að öllum nemendum sem þeir hafa kennt, eru að kenna núna eða eiga eftir að kenna í framtíðinni.
Frá þessu yfirliti geta kennarar leitað að nemendum, síað og stjórnað nemendalistum sínum yfir mismunandi skólaár og kennslutíma.
Af hverju
Mínir nemendur hjálpar kennurum að:
- Finna núverandi nemendur með bókaðar kennslustundir
- Skoða nemendur sem hafa fengið kennslu á fyrri skólaárum
- Sjá úthlutaða nemendur fyrir komandi kennslustundir
- Finna nemendur sem á eftir að bóka kennslustundir fyrir
- Senda skilaboð til eins eða fleiri nemenda beint úr yfirlitinu
- Raða og sía upplýsingar um nemendur til að finna fljótt ákveðna nemendur
Hvernig
Skref 1: Opnaðu yfirlitið „Mínir nemendur“
Farðu í „Mínir nemendur“ yfirlitið.
Hér geturðu séð alla nemendur sem þú hefur kennt, ert að kenna eða átt eftir að kenna.
Skref 2: Veldu kennslutímabil
Notaðu síu fyrir Kennslutímabil til að velja hvaða kennslutímabil þú vilt skoða.
Þú getur:
- Skoðað fyrri kennslutímabil til að sjá nemendur sem þú hefur kennt
- Skoðað núverandi kennslutímabil
- Skoðað komandi kennslutímabil (ef næsta skólaár er virkt) til að sjá nemendur sem þú munt kenna
Skref 3: Veldu kennslutegund
Notaðu síuna Kennslutegund velja hvaða kennslutegundir eiga að birtast.
Valmöguleikar:
- Aðeins hóptímar
- Aðeins einkatímar
- Allar kennslutegundir
Skref 4: Síaðu og leitaðu að nemendum
Notaðu tiltækar síur til að þrengja nemendalistann.
Þú getur síað eftir:
- Námsgrein
- Kennslustað
- Deild
Þú getur einnig notað leitarreit með frjálsum texta til að leita að tilteknum nemanda eftir nafni.
Skref 5: Sýna nemendur sem eru án kennslustunda
Virkjaðu valmöguleikann „Sýna líka nemendur án kennslustunda“ til að birta:
- Nemendur sem er búnir að fá allar sínar kennslustundir
- Nemendur sem hafa ekki fleiri bókaðar kennslustundir á valda skólaárinu
Slökktu á valmöguleikanum til að birta aðeins virka nemendur með bókaðar kennslustundir fyrir restina af skólaárinu.
Skref 6: Sýna nemendur á biðlista
Virkjaðu „Sýna biðlistanemendur“ til að birta:
- Nemendum sem þér hefur verið úthlutað af biðlista og eru ekki bókaðir í stundaskrá
Slökktu á valmöguleikanum til að birta aðeins nemendur með bókaðar kennslustundir.
Skref 7: Senda skilaboð til nemenda
Til að senda skilaboð:
- Veldu gátreit við hliðina á einum eða fleiri nemendum.
- Smelltu á „Senda skilaboð“.
- Skrifaðu og sendu skilaboðin þín.
Til að senda skilaboð til allra nemenda sem nú eru sýndir í listanum, veldu gátreitinn í hauslínu fyrir ofan nemendalistann.
Aðrar upplýsingar
Röðunarvalkostir
Hægt er að raða listianum eftir:
- Nafn nemanda (fornafn)
- Aldur
- Skólastarf
- Næsta kennslustund
- Kennslustað
- Heimaskóli
Þetta er gert með því smella á viðkomandi dálk
Útkoman
Þegar allar síur eru stilltar eftir þínu höfði, hefur þú hafa sérsniðið yfirlit yfir nemendur sem tengjast þér
Þú getur:
- Skoðað sögulega, núverandi eða framtíðar nemendur
- Fundið nemendur sem þarf að bóka í stundaskrá
- Hafið samband beint við valda nemendur
- Raðað og síað listann til að finna upplýsingar fljótt
Vert að hafa í huga
- Valmöguleikinn „Sýna líka nemendur án kennslustunda“ hefur veruleg áhrif á fjölda nemenda sem birtast
- Valmöguleikinn „Sýna biðlistanemendur“ sýnir nemendur sem þér hefur verið úthlutað en eru ekki enn bókaðir í stundaskrá
- Komandi skólastarf sést aðeins þegar næsta skólaár hefur verið virkjað
- Nemendalisti inniheldur aðeins nemendur sem tengjast þinni kennslu
- Þegar þú notar „Senda skilaboð“ fá allir valdir nemendur sömu skilaboðin. Gakktu því úr skugga um hvað nemendur þú hefur hakað við áður en þú sendir.