Hvað? Flokkun gera kleift að flokka sérsniðna reiti undir fyrirsögnum.
Flokkun sérsniðna reita fyrir prófíla allra úrræða:
- nemandi
- forráðamaður
- kennari
- staðsetning
- námsgrein
- hljóðfæri
Flokkunin birtist á prófíl ef viðkomandi úrræði hefur skilgreint sérsniðinn reit sem fellur undir flokkunina. Ef ekki fellur undir flokkunina mun engin fyrisögn birtast.
Af hverju? Ef úrræði hafa marga sérsniðna reitir geta prófílssíður (nemandi, kennari, forráðamaður o.s.frv.) orðið óskipulagðar. Flokkunin gera yfirsýn á prófílssíðum einfaldari með því að safna tengdum reitum undir skýrar og merkingarbærar fyrirsagnir.
Hvernig?
Stofna flokkun
- Farðu í Stillingar > Sérsniðnir reitir
- Smelltu á „+ Stofna“
- Gefðu flokkuninni nafn
- Smelltu á „Stofna“.
Endurnefna flokkun
Smelltu á „breyta“ (blýantstáknið) við hliðina á flokkunsem á að endurnefna.
Breyttu nafninu og smelltu á „Uppfæra“.
Eyða flokkun
Smelltu á „eyða“ (ruslatunnu táknið) við flokkunina sem þú vilt eyða
Að eyða flokkun eyðir ekki reitum. Reitir birtast áfram en án fyrirsagnar þar til þeim hefur verið úthlutað nýrri flokkun.
Skrá sérsniðna reiti undir flokkun
- Neðar á síðunni finnur þú sérsniðnu reitina
- Veldu það úrræði sem þú vilt bæta við sérsniðnum reit
- Smelltu á blýantstáknið við reitinn sem þú vilt flokka (eða stofnaðu nýjan).
- Í fellivalmyndinni "Hluti" velur þú viðeigandi hluta.
- Smelltu á „Vista“ (eða „Stofna“)
Upplýsingar
Sérsniðnir reitir
eru reitir sem er bætt við prófíl úrræðis, eins og t.d. nemanda, forráðamann, kennara, staðsetningu, námsgrein og hljóðfæri.
Hægt er að bæta við reit hjá sama úrræði undir hvaða úrræði sem er, með því að smella á punktana þrjá og velja "Setja upp sérsniðna reiti fyrir alla forráðamenn (nemendur, kennara osfrv.)"
Flokkun
Fyrirsögn sem er notuð til að flokka reiti á prófílssíðum og auka skipulag.
Reitir án flokkunar
Reitir án flokkunar birtast fyrst á prófílssíðum, á undan reitum sem eru flokkaðir.
Röðun
Stýrir röð reita innan sömu flokkunar.