Hvað: Tólið "Tvöfaldir prófílar" finnur pör af nemenda- eða forráðamannaprófílum sem líklega tilheyra sömu manneskju og gerir þér kleift að sameina þá í einn. Allar bókanir, greiðslur, skilaboð, athugasemdir og fjölskyldutengsl úr þeim prófíl sem þú heldur ekki eftir, eru flutt yfir á þann prófíl sem þú heldur eftir, og auka prófílnum er síðan eytt varanlega.
Afhverju: Það getur gerst að notandi stofnar tvo prófíla í sínu nafni. Með því að sameina prófílana safnar þú öllu aftur saman á einn prófíl í stað þess að þurfa að leita handvirkt að hverjum lið og flytja hann.
Hvernig: Fylgdu skrefunum hér fyrir neðan til að fara yfir og sameina tvöfalda prófíla.
Skref 1: Farðu í Stillingar > Notandi > "Tvöfaldir prófílar"
Skref 2: Notaðu síuna til að skipta milli nemenda og forráðamanna, og finndu svo mögulegt tilvik
Raðaðu eftir dálkinum "Samsvörun" til að sjá líklegustu tvöföldu prófílana fyrst. Línurnar eru litakóðaðar grænar, gular eða rauðar eftir því hversu vel prófílarnir tveir passa saman.
Skref 3: Smelltu á sameiningartáknið á þeirri línu sem þú vilt skoða
Skref 4: Í glugganum "Yfirfara tvöfalda prófíla" berðu prófílana tvo saman hlið við hlið
Reitir sem eru ólíkir milli prófílanna tveggja eru auðkenndir með gulu. Smelltu á þann prófíl sem á að halda eftir. Hinn er þá merktur til eyðingar.
Skref 5: Ef það er í boði skaltu velja hvor prófíllinn heldur greiðandastillingum
Þetta er hægt að velja óháð því hvor prófíllinn er valinn. Þú getur til dæmis haldið Prófíl 1 en samt haldið greiðsluupplýsingum Prófíls 2.
Skref 6: Hakaðu við staðfestingarreitinn og smelltu á "Sameina"
Upplýsingar
Gildið "Samsvörun" (0-100%) metur hversu líklegt er að tveir prófílar tilheyri sömu manneskju, byggt á kennitölu, fæðingardegi, tölvupósti, heimilisfangi og símanúmeri.
- Grænt (70%+): mjög líklega sama manneskjan.
- Gult (40-69%): þarfnast nánari skoðunar.
- Rautt (undir 40%): veik samsvörun, athugaðu vel áður en þú sameinar.
Í yfirferðarglugganum þýðir gul áherslumerking á reit að prófílarnir tveir hafa ekki sama gildi í honum. Sá prófíll sem þú heldur eftir heldur eftir öllum sínum gildum.
Það þarf að haka við staðfestingarreitinn áður en hægt er að smella á "Sameina", þar sem aðgerðin varanleg.
Niðurstaða
Prófíllinn sem haldið er eftir tekur við öllum bókunum, greiðslum, skilaboðum, athugasemdum og fjölskyldutengslum frá hinum prófílnum.
Reikningsstaða er endurreiknuð samstundis í kjölfarið, svo bókhaldið haldist rétt.
Hinum prófílnum er eytt varanlega, og færsla er skráð í tilvikaskrá á þeim prófíl haldið er eftir, þar sem báðir prófílarnir eru nefndir.
Þetta tól er einungis sýnilegt starfsfólki með réttindi til að sameina tvöfalda prófíla, svo forráðamenn sjá það aldrei. Innskráning og aðgangur forráðamanns sjálfs verða ekki fyrir áhrifum af sameiningu sem er framkvæmd fyrir þeirra hönd, fyrir utan að nú er um einn sameinaðan prófíl að ræða.
Réttindi sem þarf:
- "Sameina tvöfalda prófíla" (R_MERGE_DUPLICATE_PROFILES)
ATHUGIÐ
Sameining er varanleg. Þegar prófíl er eytt er ekki hægt að skipta gögnunum aftur upp.
Ef báðir prófílarnir eru bókaðir í sömu kennslustund eða áfanga er ekki hægt að sameina prófílan, þar sem sameining myndi annars tvíbóka þann prófíl sem lifir af á þeirri kennslustund, það þarf að laga áður en prófílarnir eru sameinaðir.