Greinar um þetta efni

Sérsniðnir reitir

Hvað ? Sérsniðinn reitur er reitur sem ofurnotandi getur sjálfur búið til. Hann er til dæmis notaður til að leggja spurningar fyrir umsækjendur í umsóknarferlinu. Einnig er hægt að nota hann til að vista upplýsingar um notendur sem safnað er með öðrum hætti.

Af hverju? Ef þú vilt geyma upplýsingar á prófíl notanda, til dæmis svör við spurningum sem lagðar eru fyrir í umsóknarferli, þurfa að vera reitir til staðar fyrir þær upplýsingar.

Hvernig?

Hægt er að bæta þeim við á tvo vegu:

Aðferð 1 – í gegnum „Stillingar“

  1. Fara í “Stillingar” og smella á “Sérsniðnir reitir”
  2. Velja prófíltegund sem á að setja inn reit hjá (kennari, nemandi osfrv.)

  3. Fylltu út og smelltu á „Stofna“:

Aðferð 2 – í gegnum prófíl

  1. Fara í hvaða prófíl sem er af þeirri tegund sem á að stofna sérsniðinn reit fyrir
  2. Smella á punktana þrjá og velja “Setja upp sérsniðna reiti fyrir alla nemendur/kennara/skóla/áfanga....”

Stofna sérsniðinn reit (báðar aðferðir):

  1. Smella á “Stofna”
  2. Fylla út reitina:

Reitarheiti: Heitið eða spurningin sem þú velur þegar reiturinn er síðar notaður í umsóknarreit.

Reitartegund: Hér er hægt að ákveða hvers konar svar er hægt að setja í reitinn, t.d.:

  • Dagsetning
  • Texti
  • Já/nei
  • Skrá
  • Fellivalmynd
  • O.fl.

Röð: Stýrir innbyrðis röðun reita.

Lesheimild: velja þann eða þá réttindahópa sem eiga að geta lesið gögn í reitnum. 

Skrifaðgangur: velja þann eða þá réttindahópa sem eiga að geta bætt gögnum inn í reitinn. 

Hluti: ef hlutar hafa verið stofnaðir er hægt að velja hér í hvaða hluta reiturinn á að vera, til að auðvelda flokkun. Reitir án hluta birtast efst.

Nauðsynlegt: Hakaðu við ef nauðsynlegt er að fylla út þessar upplýsingar (t.d. í umsóknarferli).

Má flytja á heimasíðu: Á aðeins við ef API er notað.

3. Smella á "Stofna" þegar búið er að fylla út

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg