Hvað?
Aldurstakmörk er aldursbil sem notað til að tilgreina á hvaða aldri nemendur þurfa að vera til að geta sótt um ákveðinn áfanga eða kennslustund.
Af hverju?
Við nýtt almanaksár gætir þú þurft að uppfæra aldurstakmörk fyrir ákveðna áfanga og bókanir svo réttir nemendur geti sótt um.
- Ef þú vilt halda sama nemendahópi í bókun, þá á ekki að breyta aldurstakmörkunum
- Ef þú hins vegar vilt að umsóknir eða bókanir haldi áfram að beinast að sama aldurshópi (t.d. 8–10 ára), þurfa aldurstakmörkin að vera uppfærð með nýju fæðingarára bili.
- Þar sem kerfið getur ekki vitað hvaða áfanga og bókanir á að uppfæra og hvaða ekki, þarf að gera breytingarnar handvirkt.
Hvernig?
Uppfæra aldurstakmörk á námsgreinum:
- Farðu í Stillingar > Námsgrein > Námsgreinar
- Hakaðu við allar námsgreinar sem þú vilt uppfæra
- Smelltu á „velja allar xx einingar“ ef þú vilt velja allar námsgreinar sem hafa aldurstakmörkun. Ath. að fyrst þarf að minnsta kosti að haka við eina námsgrein.
- Smelltu á „Uppfæra aldurstakmörk“
Talan sem sett er inn bætist við aldurstakmörkin, þ.e. ef sett er inn 1 þar sem aldurtakmörk eru 2015-2020 munu aldurstakmörkin uppfærast í 2016-2021
ATH: Bókanir sem þegar eru til í kerfinu verða ekki fyrir áhrifum af uppfærslunni. Ef þú vilt uppfæra bókanir sem eru þegar virkar á umsóknarsíðu, þarftu að gera það sérstaklega
Uppfæra aldurstakmörk á virkum bókunum
- Farðu í Skipulagning > Birtingastýring umsóknarsíðu
- Endurtaku skref 2-4 hér fyrir ofan