Hvað? Ef kennsla eða sjálfstæð bókun stoppar eftir ákveðinn dag og á ekki að endurtaka sig, er hægt að setja lokadag á bókunina. Þá hverfur hún úr stundaskrá en er áfram til staðar í tölfræði.
Kennslustundum og sjálfstæðum bókunum sem hafa aldrei verið tengdar neinum nemendum er hægt að eyða alveg úr kerfinu ef þú vilt ekki halda þeim.
Afhverju? Til að fjarlægja bókanir úr stundaskrá þegar þær eiga ekki lengur við.
Hvernig?
Enda bókun
Ef það eru nemendur tengdir bókuninni er ekki hægt að eyða henni alveg. En það er hægt að sett lokadag á bókunina.
Smelltu á bókunina > Smelltu á pennann
- Veldu þá dagsetningu þar sem bókuninni á að enda
- Gakktu úr skugga um að "Út skólaárið” sé virkt
- Smelltu á Enda bókun frá og með valinni dagsetningu
Bókun sem hefur verið enduð hverfur úr stundaskrá kennara og ekki er hægt að virkja hana aftur.
Á prófíl nemandans þarf að fjarlægja hakið við reitinn “Virk” til að sjá bókanir nemandans sem hafa endað. Þar sést einnig lokadagur bókunarinnar.
Eyða bókun
Ef enginn nemandi hefur verið tengdur bókuninni og þú vilt eyða henni alveg, smelltu á punktana þrjá á bókuninni og veldu “Eyða bókun”. Bókunin hverfur þá alveg úr kerfinu og er ekki hægt að endurheimta hana.
Ef kennarar eru tengdir bókuninni sem þú vilt eyða, birtist gluggi þar sem þú þarft fyrst að staðfesta að þú viljir fjarlægja kennara úr bókun og eftir það getur þú smellt á Eyða.