Greinar um þetta efni

Breyta stofu í bókun

Hvað? Flipinn Úrræði innan bókunar gerir kleift að breyta hvaða stofa er úthlutað viðkomandi bókun. Við uppfærslu á stofu er hægt að velja að beita breytingunni eingöngu á eina ákveðna kennslustund eða á allar komandi kennslustundir í bókunarröðinni. Þetta veitir sveigjanleika við stjórnun á úthlutun stofa.

Hvers vegna?
Kennarar geta þurft að breyta hvaða stofa er notuð í kennslu, annaðhvort tímabundið eða varanlega. Auðvelt er að stilla þetta í bókun til að tryggja að stundaskrá sé rétt.

Hvernig?
  1. Í valmynd velja ‘Úrræði’ 
  2. Smella á ‘Bókun’
  3. Finna þá ‘bókun’ sem á að breyta og smella á hana

  1. Í bókunni er farið í flipann „Úrræði“.
  2. Veldu rétta dagsetningu, þ.e. hvenær á að skipta um stofu
  3. Merkja hvort breytingin eigi aðeins að gilda fyrir valda dagsetningu eða allar bókanir frá og með viðkomandi dagsetningu. 
  4. Að lokum, smella á „+ Bæta við stofu“ til að finna rétta stofu

Í glugganum sem birtist þarf að:

  • Velja skóla
  • Velja stofu
  • Smelltu á „Vista“

  • Smelltu svo á ruslafötutáknið við hlið gömlu stofunnar til að fjarlægja hana.

Ef „Allar bókanir hér eftir“ var valið (blátt), verður stofan fjarlæg úr þessari og öllum komandi kennslustundum.

Ef „Allar bókanir hér eftir“ er ekki valið (hvítt), verður stofan einungis fjarlægð úr völdu kennslustundinni.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg