Greinar um þetta efni

Óska eftir staðfestingu frá forráðamann

Hvað? Hægt er að óska eftir því að forráðamaður samþykki eða hafni kennsluplássi. Nemandinn fær þá bráðabirgðasæti í bókuninni á meðan beðið er viðbragða.

Af hverju? Þú getur notað aðgerðina til að senda tillögur að tíma fyrir nýja nemendur. Þú ákvarðar hversu langan tíma forráðamaðurinn hefur til að svara boðinu.

Hvernig?

Byrjaðu á að fara yfir texta í sniðmátum fyrir sjálfvirkar tölvupóstsendingar.

Undir „Stillingar > Samskipti > Sniðmát tölvupóst og SMS > Sjálfvirkir póstar“ eru sex sniðmát fyrir sjálfvirkar sendingar á mismunandi stigum ferlisins.

Skref 1: Óska eftir staðfestingu

  • Vertu í flipanum "Skipulagshamur" í stundaskrá kennarans og dragðu nemandann inn í stundaskrána eða bættu nemandanum við inní bókuninni
  • Þá birtist gluggi þar sem þú velur „Valmöguleiki 3: Áfangi með staðfestingu frá forráðamanni“
  • Settu inn dagsetningu þar sem forráðamaðurinn þarf síðast að hafa samþykkt eða hafnað boðinu
  • Ef nemandi er á biðlista fyrir fleiri námsleiðir innan sömu námsgreinar geturðu valið að fjarlægja allar aðrar umsóknir fyrir þá námsgrein sem ekki hafa verið úthlutaðar kennara


Þegar þú smellir á „Vista“ er sjálfvirkt skilaboð sent til forráðamanns með leiðbeiningum um að skrá sig inn í SpeedAdmin og samþykkja eða hafna tímanum.
 

Ef þú smellir á bókunina í stundaskrá kennarans sérðu að nemendur hafa fengið tilboð um sæti í bókuninni.

Skref 2: Forráðamaður svarar

Forráðamaður skráir sig inn í SpeedAdmin og smellir á gula borðann.

Nú birtist gluggi þar sem forráðamaður þarf að samþykkja eða hafna kennslutímanum

  • Rauði textinn sýnir hvenær forráðamaður þarf síðast að hafa tekið ákvörðun
  • Sjálfvirkur tölvupóstur er sendur til forráðamanns og kennara, byggt á því hvort forráðamaður samþykkir eða hafnar boðinu

Ef forráðamaður samþykkir:

  • Fær nemandinn strax pláss

Ef forráðamaður hafnar:

  • Forráðamaður þarf að tilgreina hvort hann vilji halda sæti á biðlistanum eða ekki
  • Óháð því hvort forráðamaður velur að halda sæti á biðlistanum eða ekki, eru önnur biðlistasæti sem voru fjarlægð í skrefi 1 endurheimt

Ef forráðamaður tekur enga ákvörðun fyrir frestinn

  • Sjálfvirk skilaboð eru send um að kennslutíminn sé ekki lengur í boði
  • Nafn nemandans hverfur úr bókuninni og kennarinn getur boðið öðrum plássið
  • Nemandinn er ekki lengur virkur á biðlista fyrir viðkomandi námsleið
  • Önnur biðlistasæti sem voru fjarlægð í skrefi 1 eru endurheimt

Ath.

  • Áfangar/bókanir sem eru birtar, halda áfram að vera í námsframboði og er hægt að sækja áfram um þau þrátt fyrir að staðfestingarbeiðni hafi verið send á forráðamann
  • Ef ekki á að vera hægt að bóka áfangann á meðan beðið er svars þarf að fjarlægja áfangann úr námsframboði áður en staðfestingin er send
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg