Hvað? Hægt er að gera breytingar á bókunum sem þegar hafa verið stofnaðar
Afhverju? Með henni geturðu t.d.:
- Bætt nemendum við bókun
- Skipt um kennara eða bætt kennara við bókun
- Breytt stofu fyrir bókunina
- Bætt við eða fjarlægt kennslutíma úr bókun
- Breytt stillingum fyrir bókunina
Hvernig? Undir Úrræði > Bókun (í valmynd) finnur þú allar bókanir. Sem kennari finnur þú þó bara þínar bókanir. Hægt er að smella á bókunina til að breyta henni, einnig er hægt að vera í stundaskrá og smella á penna táknið.
Út frá þeim réttindum sem þú hefur, getur verið mismunandi hverju þú getur breytt í bókun (ofurnotendur ákvarða hvaða réttindi hver notandi hefur).
Það fyrsta sem þarf að gera er að ákveða hvort að breytingarnar eiga aðeins að gilda fyrir eitt skipti eða fyrir allar framtíðar kennslustundir með því að kveikja/slökkva á Út skólaárið (blátt þýðir virkt).
- Upplýsingar: Hér er hægt að breyta heiti, eiganda, tíma og staðsetningu
- Kennarar: Bæta við eða fjarlægja kennara fyrir alla bókunina eða ákveðin tíma
- Nemendur: Bæta nemendum við bókun
- Biðlisti: Bæta nemendum á biðlista fyrir bókunina eða taka inn nemendur af biðlista (hér eru nemendur á biðlista fyrir þessa tilteknu bókun)
- Úrræði: Bæta við eða fjarlægja stofur fyrir alla bókunina eða ákveðinn tíma
- Stillingar fyrir umsóknir: Hér er hægt að breyta því sem er sýnilegt á umsóknarsíðu
- Dagatal: Hér er hægt að bæta við og fjarlægja daga í bókun