Hvað: Yfirlit skilaboða er aðgengilegt á aðalsíðu og veitir nemendum og forráðamönnum aðgang að tengiliðaupplýsingum fyrir skólann og kennara sem tengjast nemandanum.
Hvers vegna: Þessi eiginleiki tryggir að nemendur og forráðamenn geti fljótt fundið þær upplýsingar sem þeir hafa mest not fyrir, eins og t.d símanúmerið á skrifstofu skólans eða hjá kennara sem tengist kennslutímum nemandans.
Hvernig:
Samskiptaupplýsingar skóla
Skref 1: Stilltu sjálfgefinn skóla
Smelltu á stjörnuna til að merkja skólann sem sjálfgefinn skóla:
Athugið: Aðeins einn skóli getur verið merktur sem sjálfgefinn í einu.
Skref 2: Settu inn samskiptapplýsingar um skóla
Samskiptaupplýsingar kennara
Tengsl við kennara
Samskiptasíðan sýnir alltaf:
- Nafn kennara
- Fag
- Tengdan nemandi
Skref 1: Tryggðu aðgang að samskiptaupplýsingum kennara
Ef notandi hefur mörg tengsl við sama kennara, er kennarinn aðeins sýndur einu sinni. Allir tengdir áfangar og nemendur birtast sem kommu skiptur listi.
Skref 2: Fela upplýsingar
Ef ofurnotandi eða kennari vill ekki deila ákveðnum upplýsingum með nemendum eða forráðamönnum, má stjórna þessu frá prófíl kennarans.
Smelltu á augað við hliðina á upplýsingunum (t.d. símanúmeri) til að fela þær. Falin gögn verða ekki sýnileg á Samskiptasíðunni.
Mikilvægar upplýsingar
- Aðeins einn skóli getur verið stilltur sem sjálfgefinn í einu.
- Notendur þurfa réttindi til að sjá samskiptaaupplýsingar kennara.
- Ákveðnar upplýsingar má fela
- Þessi eiginleiki er nú aðeins í boði í vefútgáfu, ekki enn í farsímaforritinu.