Greinar um þetta efni

Korktaflan

Hvað: Á korktöfluna getur þú sett inn upplýsingar fyrir nemendur, forráðamenn og kennara, sem sjá upplýsingarnar undir flipanum "Samfélag" þegar þeir eru innskráðir í SpeedAdmin.

Af hverju: Þú getur notað korktöfluna til að birta almennar upplýsingar sem varða alla. Þetta getur til dæmis verið um frídaga, viðburði, kynningarkvöld eða slíkt.

Hvernig: Byrjaðu á að hafa samband við þjónustver SpeedAdmin til að fá aðgang að eiginleikanum "Custom StudyPlanner". Korktaflan fellur þar undir.

Allir réttindahópar sem eiga að geta sett inn færslur á korktöfluna þurfa að hafa réttindin: MANAGE_STUDYPLAN_BILLBOARD

Setja inn færslu á korktöfluna

  1. Farðu á flipann „Samfélag“ sem er efst í upphafssýn kennara.
  2. Vinstra megin á síðunni finnur þú korktöfluna
  3. Smelltu á „+Stofna færslu" til að setja inn á korktöfluna

  4. Skrifaðu færslu í ritilinn
  5. Þú getur hlaðið upp skrá frá eigin tæki eða valið úr gagnasafni
  6. Það er hægt að merkja skilaboðin sem mikilvæg
  7. Þegar þú ert búinn, smelltu á senda-táknið

Kennarar, nemendur og forráðamenn finna flipann Samfélag hægra megin við stundaskrána þegar þeir eru innskráðir í SpeedAdmin. Þeir geta lesið en ekki svarað eða stofnað eigin færslur á korktöflunni.

Algengar spurningar

Geta nemendur og forráðamenn fengið tilkynningar um nýjar færslur á korktöflunni?

Nei, þeir verða að fara sjálfir inn á flipann Samfélag til að sjá þær.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg