Hvað? Að kennarar geti sent tölvupóst og SMS til nemenda og forráðamanna beint úr kerfinu. Hægt að nota sniðmát og sameiningarreiti og sent viðhengi og tengla með.
Af hverju? Til að það sé einfalt og þægilegt fyrir kennara að hafa samband við nemendur sína án þess að þurfa að halda utan um tölvupóstlista eða yfirgefa kerfið.
Hvernig? Það eru margar leiðir til að senda skilaboð. Allstaðar þar sem finnast umslagatákn í SpeedAdmin er hægt að senda tölvupóst.
Skref 1: Veldu viðtakanda
Nemendur í ákveðinni kennslustund
Einnig er hægt að senda skilaboð til ákveðins nemanda eða hóps í gegnum stundaskrána.
- Smella á kennslustund
- Smella á umslagstáknið
- Velja hvort eigi að senda skilaboðin til nemenda sem þegar eru í kennslustundinni eða til nemenda sem eru á biðlista fyrir kennslustundina
Nemendur í ólíkum kennslustundum
- Fara í stundaskránna og smella á flipann „Velja“
- Velja kennslustundir með því að smella á þær og/eða haka við reitinn við hlið dagsetningarinnar til að velja allar kennslustundir þann daginn
- Smella á „Skilaboð“
Allir eigin nemendur
- Smella á „Úrræði > Bókun“
- Nota síur ef þrengja á leitina (gakktu til dæmis úr skugga um að nafn þitt sé í reitnum „Kennari“)
- Velja alla nemendur (kassann efst) eða hakaðu við þá nemendur/hópa sem þú vilt senda til
- Ef fleiri en 25 einingar eru í valinni síu þarf að smella á textann „Velja alla einingar“ til að fá með alla
- Smella á „Senda skilaboð“
- Einnig er hægt að velja að senda skilaboð til nemenda sem eru á biðlista fyrir bókanir sem þú ert skráður fyrir. Þá eru bókanirnar valdir á sama hátt og áður en smellt á „Senda skilaboð (Biðlisti)“.
Nemendur á biðlista fyrir áfanga
Ef þú vilt senda skilaboð til nemenda sem eru á biðlista fyrir áfanga, ekki til ákveðinnar bókunar, getur þú gert það í gegnum Biðlistann.
Skref 2: Stofna skilaboð
Þegar þú hefur valið viðtakendur er komið að því að setja saman skilaboð.
- Ef þú velur ekkert fara tölvupóstarnir til bæði nemenda og forráðamanna. Hægt er að takmarka við aðeins nemendur, aðeins forráðamenn eða aðeins greiðendur
- Smelltu á „Sniðmát“ ef þú vilt velja tilbúið sniðmát fyrir skilaboðin þín eða vista skilaboðin sem sniðmát
- Undirskriftin þín er þegar innifalin í tölvupóstinum, þú þarft ekki að breyta henni
- Með hnappnum „Sameiningarreitur“ getur þú látið tölvupóstinn sækja einstaka upplýsingar fyrir hvern nemanda sem þú sendir til
- Smelltu á „Forskoðun“ til að sjá hvernig tölvupósturinn mun líta út fyrir hvern einstakan viðtakanda, hægt að fletta á milli viðtakenda. Hér getur þú líka séð hvernig undirskriftin þín lítur út
- Ef þú vilt getur þú bætt við skrám eða myndum eða sett inn tengla í skilaboðin þín
- Ef þú vilt senda SMS getur þú skrifað í SMS textareitinn, það er bæði hægt að senda einungis SMS eða bæði SMS og tölvupóst
- Að lokum er smellt á „Senda“
Þegar viðtakandi svarar tölvupósti berst svarið í pósthólfið fyrir það netfang sem þú hefur skráð á prófílnum þínum. Póstsamskiptin halda svo áfram utan kerfis.
Ath. Ekki er hægt að svara SMS-skilaboðum sem send eru í gegnum kerfið.
Skref 3: Yfirlit yfir send skilaboð
- Smelltu á umslagatáknið í valmyndinni og veldu „Yfirlit“
- Talan í litla hringnum sýnir hversu margir viðtakendur skilaboðin hafa og liturinn á hringnum segir til um hvort skilaboðin hafi verið send til viðtakenda eða ekki
- Smelltu á „Afhendingarstaða“ ef þú vilt sjá hvaða viðtakendur skilaboðin hafa verið send til
Smelltu á „Sýna innihald“ til að sjá skilaboðin sem þú sendir.