Hvað? Senda tölvupóst og SMS til nemenda, forráðamanna og samstarfsfólks beint úr kerfinu. Þú getur notað sniðmát og sameiningarreiti og sent með fylgiskjöl og tengla.
Af hverju? Til að hafa samband við nemendur, forráðamenn og samstarfsfólk á auðveldan og þægilegan hátt, án þess að þurfa að yfirgefa kerfið.
Hvernig? Það eru margar leiðir til að senda skilaboð í SpeedAdmin. Allstaðar þar sem þú sérð umslagatákn getur þú sent tölvupóst.
Skref 1: Veldu viðtakanda
Einn viðtakandi
Það er alltaf hægt að senda skilaboð til eins nemanda, forráðamanns eða kennara með því að smella á umslagatáknið á prófílnum þeirra.
Nemendur í ákveðinni kennslustund
Til að senda skilaboð til ákveðins nemanda eða hóps getur þú farið í stundaskrá kennarans.
- Smella á kennslustund
- Smella á umslagstáknið
- Velja hvort eigi að senda skilaboðin til nemenda sem þegar eru í kennslustundinni eða til nemenda sem eru á biðlista fyrir kennslustundina
Nemendur í ólíkum kennslustundum hjá sama kennara
- Fara í stundaskrá kennarans og smella á flipann „Velja“
- Velja kennslustundir með því að smella á þær og/eða haka við reitinn við hlið dagsetningarinnar til að velja allar kennslustundir þann daginn
- Smella á „Skilaboð“
Allir - eða allir út frá síun
- Smelltu á „Úrræði > Bókun“
- Síuðu eftir mismunandi breytum til að finna þá nemendur/hópa sem þú vilt senda til. Til dæmis alla nemendur hjá ákveðnum kennurum, á völdum kennslustað, í ákveðnum greinum o.s.frv.
- Hakað við alla nemendur eða hakaðu við þá nemendur sem þú vilt senda til
- Ef fleiri en 25 bókanir eru í þeirri síun sem valin er, þarf að smella á textann „Velja alla xx einingar“ til að fá alla með
- Þegar þú hefur valið viðtakendur, smelltu á „Senda skilaboð“
- Þú getur líka sent skilaboð til nemenda sem eru á biðlista. Þá síar þú á sama hátt og hér að ofan en þegar þú ert búinn að velja smellir þú á „Senda skilaboð (Biðlisti)“
- Ef þú vilt senda skilaboð til allra nemenda á biðlista getur þú gert það í gegnum „Biðlisti“ í valmyndinni efst á síðunni
Skref 2: Stofna skilaboð
Þegar þú hefur valið viðtakendur er komið að því að setja saman skilaboð.
- Ef þú velur ekkert fara tölvupóstarnir til bæði nemenda og forráðamanna. Hægt er að takmarka við aðeins nemendur, aðeins forráðamenn eða aðeins greiðendur
- Smelltu á „Sniðmát“ ef þú vilt velja tilbúið sniðmát fyrir skilaboðin þín eða vista skilaboðin sem sniðmát
- Undirskriftin þín er þegar innifalin í tölvupóstinum, þú þarft ekki að breyta henni
- Með hnappnum „Sameiningarreitur“ getur þú látið tölvupóstinn sækja einstaka upplýsingar fyrir hvern nemanda sem þú sendir til
- Smelltu á „Forskoðun“ til að sjá hvernig tölvupósturinn mun líta út fyrir hvern einstakan viðtakanda, hægt að fletta á milli viðtakenda. Hér getur þú líka séð hvernig undirskriftin þín lítur út
- Ef þú vilt getur þú bætt við skrám eða myndum eða sett inn tengla í skilaboðin þín
- Ef þú vilt senda SMS getur þú skrifað í SMS textareitinn, það er bæði hægt að senda einungis SMS eða bæði SMS og tölvupóst
- Að lokum er smellt á „Senda“
Þegar viðtakandi svarar tölvupósti berst svarið í pósthólfið fyrir það netfang sem þú hefur skráð á prófílnum þínum. Póstsamskiptin halda svo áfram utan kerfis.
Ath. Ekki er hægt að svara SMS-skilaboðum sem send eru í gegnum kerfið.
Skref 3: Yfirlit yfir send skilaboð
- Smelltu á umslagatáknið í valmyndinni og veldu „Yfirlit“
- Talan í litla hringnum sýnir hversu margir viðtakendur skilaboðin hafa og liturinn á hringnum segir til um hvort skilaboðin hafi verið send til viðtakenda eða ekki
- Smelltu á „Afhendingarstaða“ ef þú vilt sjá hvaða viðtakendur skilaboðin hafa verið send til
Smelltu á „Sýna innihald“ til að sjá skilaboðin sem þú sendir.