Greinar um þetta efni

Stofna og breyta bókun

Hvað þýðir það?

Kennarar og ofurnotendur geta stofnað bókun (kennslustund) í stundaskrá kennaranna sem síðan er hægt að bæta við nemendum í.

Af hverju ætti ég að gera það?

Það er nauðsynlegt að stofna bókun í stundaskrá kennara svo kennarar geti dregið nemendur inn í stundaskrárnar sínar.

Það er einnig hægt að birta þessar bókanir í námsframboði skólans, þannig að nemendur geti sótt um eða skráð sig á ákveðnum degi og tíma hjá ákveðnum kennara. Nánari upplýsingar má finn í leiðbeiningunum Birta í námsframboði.

Hvernig stofna ég bókun?

Skref 1: Opna stundaskrá kennara

  1. Finndu viðeigandi prófíl kennara með því að leita í Super Search eða með því að smella á „Úrræði“ og síðan „Kennari/notandi“, og velja kennarann af listanum.
  2. Smelltu á skjaldartáknið til að hlaða stundaskránni.

Skref 2: Velja hvað á að stofna

Tvísmelltu í stundaskránni á þann dag og tíma þar sem bókunin á að vera. Glugginn „Hvað viltu stofna?“ opnast.

Mynd sem inniheldur texti, skj�mynd, n�mer

Efni búið til af gervigreind getur verið með villum.

  1. „Stofna kennslu“ fyrir kennslustundir og hópa.
  2. „Stofna sjálfstæða bókun“ fyrir bókanir eins og fundi eða tónleika.
  3. „Stofna laust pláss“ fyrir bókanir sem hægt er að birta í námsframboði með tveimur eða fleiri hljóðfærum. Þegar nemandi er skráður á slíka bókun verður hún að einni áfangabókun.
Einnig er hægt að tvísmella á dagsetningu sem er merkt sem frídagur. Glugginn opnast þá á sama hátt og SpeedAdmin athugar hvaða bókunartegundir eru leyfðar á viðkomandi degi áður en haldið er áfram.
Bókunartegund sem ekki er hægt að nota á valinni dagsetningu birtist gráleit og er ekki hægt að velja. Ef einn eða fleiri valkostir eru óaðgengilegir birtist upplýsingaborði í glugganum.

Skref 3. Fylla út upplýsingar um áfangann

  1. Veldu viðeigandi námsgrein í fellilistanum „Námsgrein“.
  2. Ef þörf krefur, notaðu „Heiti“ til að gefa bókuninni nákvæmara heiti, til dæmis „Söngstund 3-5  bekkur“.
  3. Veldu kennara eða annan starfsmann  í fellilistanum „Eigandi“.
  4. Undir „Tími og staðsetning“, 
    • stilltu „Lengd í mínútum“ ef hún á að vera önnur en sú sem skilgreind er fyrir þann áfanga sem valinn var undir „Áfangi“.
    • Stilltu „Upphafsdagsetningu“ og „Upphafstíma“.
    • Stilltu tíðni, til dæmis daglega eða vikulega.
    • Veldu „Fjölda skipta“ fyrir fyrirfram ákveðinn fjölda kennslustunda sem bókunin á að gilda fyrir, eða „Áframhaldandi“ til að halda bókuninni virkri frá upphafsdegi út skólaárið og áfram.
  5. Veldu í fellilistanum „Staðsetning“ hvar bókunin fer fram.
  6. Smelltu á „Næsta“ til að fara áfram á síðuna „Skráningarstillingar“.

Mynd sem inniheldur l�na, skj�mynd, texti

Efni búið til af gervigreind getur verið með villum.

Áfangi sem er ekki í boði á valinni dagsetningu birtist grár í fellilistanum „Áfangi“, ásamt eftirfarandi ástæðu:
„Þessi áfangi er ekki í boði á þessari dagsetningu samkvæmt kennsluáætlun sinni.“

Smella á "Næsta"

Skref 4. Uppsetning fyrir námsframboð

Námsstig (ef það er virkt hjá ykkur) og umsóknartegund verður alltaf að setja inn óháð því hvort að bókunina á að birta eða ekki. Ath. að engar bókanir eru sjálfkrafa birtir í námsframboði. Það er gert af ofurnotanda á öðrum stað.

  1. Setja inn námsstig fyrir bókunina. Námsstig eru sett upp sérstaklega fyrir hvern og einn skóla undir stillingar. Ef þau eru virkjuð munu þau birtast sem sía í námsframboði.
  2. Umsóknartegund ákvarðar hvort áfanginn leyfi umsóknir eða hvort hægt sé að skrá sig beint í áfangann.
    1. Aðeins biðlisti: Aðeins hægt að skrá sig á biðlista fyrir þessa umsókn
    2. Hámarksfjöldi nemenda: Setur hámark á fjölda nemanda sem geta skráð sig beint í bókunina. Þegar fjölda er náð er ekki hægt að skrá sig lengur.
    3. Hámarksfjöldi nemenda með biðlista: Setur hámark á fjölda nemenda og þegar fjölda er náð fara nemendur eftir það á biðlista.
    4. Ótakmarkaður fjöldi nemenda: Ef það eru engin takmörk á því hversu margir geta skráð sig beint í bókunina.
  3. Hægt er að setja inn lýsingu fyrir bókunina, það er valfrjálst
  4. Hægt er að virkja aldurstakmörk, þá er skilgreint á milli hvaða ára umsækjandi er fæddur
  5. Hægt er að ákveða hvaða breytur eru sýnilegar í námsframboði, ef það er strik yfir augntáknið mun sú breyta ekki vera sýnileg.
  6. Ef þú ætlar að bæta við nemendum og kennurum í bókunina (þarft að hafa réttindi), smellir þú á Næsta annars smellir þú að Vista og opna bókun eða Vista (og loka)

Mynd sem inniheldur texti, skj�mynd, l�na, n�mer

Efni búið til af gervigreind getur verið með villum.

Skref 5: Úthluta kennurum (valfrjálst)

Kennarinn sem unnið er í stundaskrá fyrir bætist sjálfkrafa við. Til að bæta við fleiri kennurum skal opna flipann „Úthluta kennurum“.
  • Smella á „Bæta við kennara“
  • Finna kennara með því að fletta eða leita og haka við reitinn við hlið nafnsins
  • Smella á „Bæta við valda og halda áfram“

Stillið eftirfarandi fyrir hvern kennara sem bætt er við:
Sýna í yfirliti – ákvarðar hvort nafn kennara birtist í Áfangaskrá, Publish Pipeline eða á síðu nemanda fyrir skólastarf.
Launaflokkur – flokkurinn sem nota á við greiðslu fyrir þessa bókun.
Launaútreikningstegund – hvort bókunin eigi að teljast með í útreikningi vinnustunda.
Deild – hvaða deild bókunin tilheyrir (tengist þeim deildum sem hafa verið settar upp í „Deildir og flokkar“ undir flipanum „Áfangi“ í „Stillingum“).
Tímastuðull – ákvarðar hvort bókunin eigi að teljast með auka tíma fyrir kennara. Gildið „1“ reiknar tímann samkvæmt lengdinni sem var skilgreind fyrr í ferlinu, en gildi lægra eða hærra en „1“ minnkar eða eykur tímann.
Bæta við viðbótartíma:
Aukamínútur – bætir við viðbótartíma við bókun kennara (til dæmis fyrir undirbúning eða frágang).
Auka tímastuðull – virkar á sama hátt og Tímastuðull, en á við um þær aukamínútur sem bætt er við bókunina.

Skref 6: Úthluta nemendum (valfrjálst)

Ef nemandi hefur þegar verið úthlutað kennara af biðlista bætist hann sjálfkrafa við. Hægt er að bæta við fleiri nemendum á flipanum „Úthluta nemendum (valfrjálst)“.
  1. Smella á „Bæta við núverandi nemanda“ ef nemandinn er þegar í kerfinu en hefur ekki sótt um í gegnum biðlista, eða „Bæta við nemanda af biðlista“ ef nemandinn er á biðlista
  2. Leita að nemandanum, velja hann og smella á „Næsta“

  3. Velja hvort yfirskrifa eigi gjaldið
  4. Velja hvernig tilkynna eigi forráðamanni um nýju bókunina

Skef 7: Vista bókun

Ljúktu bókuninni með öðrum hvorum hætti:
  • „Vista og opna bókun“ opnar upplýsingar bókunarinnar.
  • „Vista“ birtir bókunina í stundaskrá kennarans.
Ef nemandinn er á biðlista skal smella á „Bæta við nemanda af biðlista“. Þá birtist sambærilegt valmyndarsvæði og lýst er hér að ofan, en fyrir nemendur á biðlista. Ferlið er síðan það sama.

Ef þú ert að búa til margar bókanir innan sömu námsgreinar, getur þú afritað bókun sem þú ert búin að stofna, í stað þess að fara í gegnum öll skrefin aftur. Smelltu á bókunina og síðan á afritunartáknið. Þá mun afrit birtast við hliðina á upprunalegu bókuninni í stundaskránni. Hægt að endurtaka eins oft og þörf er á

 

Atriði sem þarf að hafa í huga:
  • Bókunartegund eða áfangi sem birtist gráleitaður merkir að hann er ekki skilgreindur til að fara fram á þeirri dagsetningu samkvæmt kennsluáætlun. Ef dagsetningin á að vera í boði þarf fyrst að uppfæra „Akademíska kennsluáætlunina“ eða „Orlofs- og skólaársáætlunina“ í stillingum og síðan stofna bókunina.
  • Ef stofna þarf nokkrar bókanir af sömu gerð er hægt að afrita bókun. Smelltu á bókunina í stundaskrá kennarans undir flipanum „Stundaskrá“ eða „Skipulagshamur“ og smelltu síðan á táknið „Afrita“.
  • Hægt er að afrita bókun eins oft og þörf er á. Breyttu hverju afriti með því að smella á bókunina og velja blýantstáknið „Breyta“.
  • Til að færa bókunina á annan tíma þarftu að vera í Skipulagsham
  • Það er alltaf hægt að aðlaga bókun með því að velja penna táknið (sjá leiðbeiningarnar Breyta áfanga).
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg