Hvað? Ef nemandi þarf að greiða aðra upphæð en venjulega fyrir áfanga, getur þú leiðrétt gjaldið handvirkt fyrir hann. Venjulega felur þetta í sér að lækka gjaldið, en einnig er hægt að bæta við aukagjaldi.
Af hverju? Notaðu þennan eiginleika til að tryggja að nemendur greiði rétt gjald fyrir sitt nám. Algeng notkunartilvik eru:
- Þegar nemandi byrjar í áfanga miðja önn og ætti ekki að greiða fullt gjald
- Þegar nemandi á að greiða aukagjald fyrir áfanga eða greiða fyrir áfanga sem er venjulega ókeypis
Hvernig?
- Á prófíl nemandans, velja flipann „Gjaldfærslur“
- Opna örina við hlið reikningsnúmersins
- Síðan smelltu á + við það gjald sem á að breyta
Í reitnum „Bæta við handvirkri breytingu“:
- Veldu greiðslutegund
- Sett inn upphæðina sem á að draga frá eða bæta við.
- ATH! Passaðu að setja mínusmerki fyrir framan ef um frádrátt er að ræða. - Hakið við „Gefur afslátt“ þarf aðeins að vera til staðar þegar þú bætir við gjaldi, og það á að fá afslátt sjálfvirkt (t.d. systkinaafsláttur).
- Settu inn texta sem er lýsandi fyrir breytinguna. Þessi texti birtist á reikningnum.
- Smelltu á „Bæta við handvirkri breytingu“