Hvað: Ef nemandi á að greiða annað verð en venjulegt skólagjald fyrir áfanga er hægt að breyta því handvirkt á prófílnum hans. Oftast snýst þetta um að gefa afslátt frá skólagjaldinu en það er líka hægt að bæta við.
Af hverju: Notaðu aðgerðina til að tryggja að nemendur fái rétt gjald. Algengar ástæður:
- Þegar nemandi hættir í námi á meðan á önn stendur og á ekki að borga fullt gjald.
- Þegar nemandi byrjar í námi seinna á önninni og á ekki að borga fullt gjald.
- Þegar nemandi á að borga aukagald fyrir áfanga eða borga fyrir áfanga sem venjulega er frír.
Hvernig:
- Á prófíl nemanda, smelltu á flipann Gjaldfærslur.
- Smelltu á örina við reikningsnúmerið.
- Smelltu á + táknið við gjaldið sem á að breyta.
Í glugganum Bæta við handvirkri breytingu:
- Veldu greiðslutegund/bókhaldslykil.
- Sláðu inn upphæðina sem á að draga frá eða bæta við.
- ATH! Vertu viss um að setja mínustákn fyrir framan ef þú vilt draga frá.
- Aðeins haka við Gefur afslátt ef hún á að telja með í mögulegum sjálfvirkum afsláttum (t.d. systkinaafslætti). - Settu inn texta sem lýsir afslættinum. Þessi texti mun sjást á reikningnum.
- Smelltu á Bæta við handvirkri breytingu.