Hvað? Ef þú þarft að rukka nemanda fyrir annað en skólagjaldið, geturðu bætt við aukagjaldi. Gjaldið er einstaklingsbundið og þú þarft að fara inn á prófíl viðkomandi nemanda til að bæta því við.
Af hverju? Dæmi um notkun:
- Nemandi á að greiða sérstakt gjald fyrir námsefni frá tónlistarskólanum
- Nemandi á að greiða fyrir sumarnámskeið eða sambærilegt
- Nemandi á að greiða áminningargjald fyrir að hafa ekki skilað leiguhljóðfæri á réttum tíma
Hvernig?
- Á prófíl nemandans, smelltu á flipann “Gjaldfærslur”.
- Smelltu á hnappinn +Aukagjald.
- Veldu greiðanda
- Veldu bókhaldslykil
- Veldu gjaldtímabil
- Veldu greiðslutegund
- Skrifaðu texta sem lýsir gjaldinu
- Sláðu inn upphæð
- Smelltu á Bæta við
Nú geturðu opnað örina við reikningsnúmerið til að sjá viðbótargjaldið. Þar er einnig mögulegt á að breyta eða fjarlægja gjaldið.
Við notkun hámarksgjalds
Aukagjöld eru ekki talin með við útreikning á sjálfvirkum afsláttum eins og systkinaafslætti og hámarksgjaldi. Þegar þú bætir við aukagjaldi fyrir nemanda þarftu því að vera meðvitaður um að samanlögð gjöld nemandans geta orðið hærri en hámarksgjaldið.