Greinar um þetta efni

Setja upp niðurgreiðsluumsóknir

Hvað? Niðurgreiðslur gera nemendum og forráðamönnum mögulegt að sækja um niðurgreiðslu á skólagjöldum þegar sótt er um tónlistarnám. Þetta er alla jafna ekki notað í íslenskum tónlistarskólum þar sem frístundastyrkurinn er í boði, en möguleikinn er fyrir hendi.

Afhverju? Öllum umsóknum er safnað saman á einum stað í kerfinu og þú getur skilgreint hvaða upplýsingar þurfa að vera til staðar til að taka afstöðu til umsóknar.

Hvernig?

Farðu til "Stillingar > Námsframboð > Niðurgreiðsluumsókn"

Hér ákveður þú hvort að niðurgreiðsluumsóknir eigi að vera virkar eða ekki. Það er t.d. hægt að hafa þær bara virkar á ákveðnu tímabili. Ef umsóknir eru virkjaðar þarf að setja upp ýmis atriði.

Undir flipanum „Spurningar“ er hægt að forskoða umsóknia og setja inn þær spurningar sem umsækjandi þarf að svara.

Forskoðunin sýnir hvaða spurningar koma fram og hverning uppsetningin á þeim er (á sama hátt og á umsóknarsíðu). Þetta er sú sýn sem forráðamenn sjá þegar þeir ætla að senda inn umsókn.

Til að setja inn/bæta við spurningu, smella á "+ Stofna":

Reitarheiti er sjálf spurningin og reitartegund skilgreinir svarið við spurningunni. Með því að merkja reit sem „Verður að útfylla“ er tryggt að ekki er hægt að senda inn umsókn án þess að svara spurningunni.

Mismunandi reitategundir bjóða upp á mismunandi möguleika. Fellivalmynd gerir þér t.d. mögulegt að skilgreina fyrirfram ákveðin svör:

Þannig getur hver skóli ákveðið hversu miklar upplýsingar og hvaða upplýsingar þarf til að vinna úr umsóknunum.

Fyrir forráðamenn lítur ferlið svona út:

Við upphleðslu skráa er skilgreint hvaða skráarsnið eru leyfð:

Leyfileg skráarsnið:
.gif, .jpg, .jpeg, .png, .doc, .docx, .pdf, .ppt, .pptx, .xlsx, .xls, .csv, .xml, .txt, .qt, .mov, .avi, .mp4, .mpeg, .mpg, .gp, .gpx, .gp3, .gp4, .gp5, .gp6, .gp7, .musicxml, .mxl, .zip, .sib, .mscz, .mscx, .mus, .mid

(Hámarksstærð skráar: 1024 MB)

Að lokum þarf forráðamaður að velja nemanda sem umsóknin á við um.

Ath. Forráðamaður þarf að senda inn umsókn fyrir hvern nemanda ef hann á fleiri en einn í skólanum.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg