Greinar um þetta efni

Setja upp umsóknir fyrir hljóðfæraleigu

Hvað? Þetta gerir nemendum og forráðamönnum mögulegt að sækja um að leigja hljóðfæri í gegnum SpeedAdmin.

Af hverju? Með því að leigja út hljóðfæri til nemenda fá þeir aðgang að góðu hljóðfæri án þess að þurfa að greiða háan upphafskostnað við kaup. Þetta gefur nemendum tækifæri til að æfa sig reglulega, taka fullan þátt í kennslu og þróa tónlistarhæfileika sína á hagkvæman hátt.

Hvernig? Fylgdu skrefunum hér að neðan til að bjóða upp á hljóðfæraleigu:

Skref 1 

Farðu í Stillingar → Námsframboð→  Umsókn um hljóðfæraleigu
Hér geturðu valið hvort opið sé fyrir umsóknir eða ekki, þannig er t.d. hægt að opna fyrir þær á ákveðnu tímabili.

Smelltu á “Hljóðfæraleiga” (slóð) til að setja inn texta.

  1.  Með þvi að haka við “Prufuviðmót” hefur þú möguleika á að setja inn/ gera breytingar á textanum.
  2. Til að breyta sjálfum textanum smellir þú á penna táknið í kassanum, þar getur þú bætt við fyrirsögn og undirtexta.

Skref 2

Nú getur þú skilgreint hvaða upplýsingar þú vilt fá frá umsækjendum með því að fara í flipann “Spurningar og búa til þær spurningar sem umsækjandi þarf að svara. Gakktu úr skugga um að allir skyldureitir séu fylltir út.

Ef reiturinn býður upp á að hlaða inn skrá, kemur fram hvaða skráarsnið eru leyfileg (Hámarksstærð skráa: 1024 mb):

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg