Greinar um þetta efni

Leyfa forráðamönnum að segja upp námi nemanda

Hvað? Leyfa uppsögn gerir forráðamönnum kleift að skrá sig inn á SpeedAdmin og senda inn uppsagnarbeiðni, þegar þeir vilja að nemandi hætti í námi. Nemandi er ekki afskráður um leið og  forráðamaðurinn sendir inn beiðni, heldur aðeins þegar ofurnotandinn samþykkir beiðnina í kerfinu.

Af hverju? Með því að leyfa forráðamönnum að senda inn uppsagnarbeiðni, tryggir það að þeir fái og samþykki skilmála og skilyrði fyrir afskráningu. Þú getur stjórnað hvaða spurningum þeir þurfa að svara í tengslum við uppsögnina og safnað tölfræði um ástæður afskráninga.

Hvernig? Ofurnotandi þarf að setja upp stillingar í kerfinu áður en forráðamenn hafa möguleiga á að nota aðgerðin.

Skref 1: Kveiktu á eiginleikanum

  1. Farðu í Stillingar - Námsframboð - Afskráningarstillingar
  2. Hakaðu við Leyfa uppsögn
  3. Settu inn skilyrði fyrir uppsögn í textareitinn
  4. Smelltu á Vista 

Skref 2: Setja upp spurningar fyrir forráðamenn

  1. Veldu flipann Spurningar (afskráning) og smelltu á + Stofna
  2. Fylltu út upplýsingarnar
    • Reitarheiti: er spurningin sjálf
    • Reitartegund: er tegund svarmöguleika
    • Röð: hvaða spurning er fyrst osfrv.
    • Verður að útfylla: Haka við ef nauðsynlegt er að svara spurningunni til að halda áfram
    • Má flytja á heimasíðu – er tengd API uppsetningu
  3. Smella á Stofna

Skref 3: Setja upp uppsagnarástæður

Veldu  flipann Uppsagnarástæða og settu inn þær ástæður sem forráðamenn geta valið um.

  1. Smelltu á + Stofna
  2. Fylltu út Uppsagnarástæða og númer hvað hún á að vera á upptalningarlistanum
  3. Smelltu Stofna

ATH. Ekki er hægt að eyða uppsagnarástæða sem þegar hefur verið notuð, en það er hægt að gera hana óvirka með því að smella á punktana þrjá hægra megin við ástæðuna.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg