Hvað? Námsframboðssíðan gerir þér kleift að sýna allt það nám sem boðið er upp á í skólanum, hvort sem það eru námsgreinar eða bókanir, á skýran og notendavænan hátt. Viðskiptavinir geta skoðað síðuna til að finna áfanga, sótt um eða bókað sig beint þar sem laus pláss eru.
Af hverju? Hægt er að sérsníða uppsetningu síðunnar, bæta við gagnlegum upplýsingum fyrir notendur og stjórna hvernig áfangar eru síaðir og sýndir.
Hvernig? Ekkert þarf að gera til að virkja námsframboðssíðuna en hér fyrir neðan er hægt að finna upplýsingar um uppsetningu.
Sérsníða námsframboð
Yfirskrift og mynd
- Þú getur bætt við yfirskrift efst í námsframboðið
- Þú getur einnig hlaðið upp mynd sem birtist efst í námsframboðinu. Þetta getur bætt útlit síðunnar, gert skýrara á hvaða síðu umsækjandi er eða bara sem sjónrænt samhengi fyrir notendur
Mikilvægt
Ef annað hvort yfirskriftin eða myndin er fyllt út, birtist sjálfkrafa hnappur með textanum „Finndu þína námsgrein“.
Áherslusvæði
Þú getur bætt við allt að þremur áherslusvæðum (hotspots) í námsframboðið.
Hvert áherslusvæði inniheldur:
- Yfirskrift
- Meginmálstexta
Ef textinn verður of langur, birtist sjálfkrafa hnappur með textanum „Sýna meira“ til að halda síðunni einfaldri og auðlesanlegri.
Að stofna áherslusvæði
Áherslusvæði eru gagnleg til að leiðbeina viðskiptavinum um síðuna og draga fram mikilvægar upplýsingar, svo sem:
- Útskýra mismunandi tegundir áfanga
- Leggja áherslu á ákveðna áfanga eða bókanir
- Veita leiðbeiningar um hvernig á að leita eða bóka áfanga
- Kynna sérstaklega áfanga fyrir t.d. ákveðna aldurshópa eða stig
Með skilvirkri notkun áherslusvæða er hægt að hjálpa umsækjendum að finna réttan áfanga hraðar.
Til að stofna áherslusvæði þarf að virkja „Prufuviðmót“ með því að smella á hnappinn efst á síðunni
Smelltu á blýantstáknið neðst í áherslusvæði til að breyta textanum eða ruslatunnutáknið til að eyða. "+ Bæta við áherslusvæði" bætir við nýju, en athugið að það er einungis hægt að hafa þrjú, svo ef þrjú eru nú þegar stofnuð þarf fyrst að eyða einu, til að stofna nýtt.
Námsframboðssíur
Síur gera notendum kleift að þrengja niðurstöður og auðveldar umsækjendum að finna það sem leitar er að.
Síur birtast sjálfkrafa út frá uppsetningu og tiltækum upplýsingum, sumar þeirra er hægt að setja sérstaklega upp undir „Stillingar“.
Tiltækar síur
- „Kennslustaður“- sían birtist aðeins ef að minnsta kosti einn kennslustaður hefur verið stofnaður í kerfinu
- „Námsgrein“ - er alltaf sýnileg, og er sett upp undir "Sía fyrir umsóknir" í stillingum (þessari síu er ekki hægt að slökkva á)
- „Vikudagur“ - birtist aðeins þegar skólinn býður upp á áfanga/kennslustundir sem hægt er að bóka sig beint í
- „Fæðingarár“ - er hægt að virkja/afvirkja
- Stillingar > Námsframboð > Stillingar
- „Stig“ - birtist aðeins ef stig eru skráð
- Stillingar > Námsgrein > Stig
- Hverfi – birtist aðeins ef hverfi hefur verið stofnað í kerfinu.
- Stillingar > Skóli > Hverfi
Vantar síu?
Ef síu vantar í Námsframboðið, er það yfirleitt vegna þess að viðeigandi stillingar hafa ekki verið virkjaðar í kerfinu.
Skoðaðu stillingarnar frekar en Námsframboðssíðuna sjálfa.
Við mælum með
Til að nýta námsframboðsíðuna sem best
- Hafa skýra og lýsandi yfirskrift
- Setja inn viðeigandi mynd til að bæta útlit síðunnar
- Nota áherslusvæði til að leiðbeina viðskiptavinum og draga fram mikilvægar upplýsingar
- Tryggja að stillingarnar séu réttar svo síur birtist eins og þær eiga að gera