Skref 1: Bakfæra reikning
Byrjað er á að fara inn á prófíl þess forráðamanns sem á að bakfæra hjá.
- Smellt á flipann „Reikningar“
- Smellt á punktana þrjá lengst til hægri á reikningslínunni sem á að bakfæra og veldu þar "Bakfæra bókfærðan reiknig
Í glugganum sem birtist, þarftu að staðfesta að þú viljir bakfæra reikninginn
Skref 2: Leiðrétta bakfærslureikninginn
- Farið á flipann „Gjaldfærslur“ á prófíl forráðamanns.
- Nú hafa tvær línur bæst við:
- Bakfærsla á upprunalegum reikningi (rauðar tölur)
- Nýr reikningur fyrir heildarupphæðinni (svartar tölur)
- Velja greiðslutegund
- Setja inn þá upphæð sem forráðamaður á að greiða
- Setja inn texta sem kemur fram á reikningi forráðamanns
- Smella á „Bæta við handvirkri breytingu“
Hér fyrir neðan sést að sjálfur reikningurinn er 5000 kr. hærri en bakfærslan og það er það sem forráðamaður endar á að borga:
Ef fleiri línur eiga að leiðréttast, smelltu á plústáknið og endurtaktu skrefin.
Skref 3: Stofna bókfærslu
- Þegar þú ert búinn, farðu í „Reikningar“ í valmyndinni efst á síðunni og veldu „Innheimta“
- Hakað viðr þann greiðanda sem var verið að leiðrétta hjá
- Smelltu á "Bókfæra"
Í glugganum sem birtist, er hægt að setja inn gjalddaga, texta (heiti sjálfrar bókfærslunnar) og síðan þarf að haka við að breytingar hafa verið gerðar, eftir það er hægt að smella á „Bókfæra“.
Skiptu yfir á flipann „Bókfært“ og þú sérð að ný bókfærsla er komin.
Smelltu á örina til að sjá innihaldið.
Bókfærslan inniheldur:
- Bakfærslu
- Nýjan reikning til greiðanda
Nýju bókfærsluna er nú tilbúinn til niðurhals og sendingar á sama hátt og við hefðbundna reikningagerð. Ef sjálfvirk sending til bókhaldskerfis er virk, er ekki þörf á frekari aðgerðum.