Hvað: Þessi ferill lýsir hvernig þú stofnar, ferð yfir og bókfærir kröfur í SpeedAdmin á völdu tímabili.
Afhverju: Með því að stofna bókfærslu tryggir þú að allar réttar gjaldlínur séu innifaldar, villur séu leiðréttar áður en reikningar eru sendir og að bókhaldsdeild fái réttar bókfærslur.
Hvernig
- Farðu í „Reikningar > Innheimta > Óbókfært (Einstaklingar)“ í valmyndastikunni
- Veldu gjaldtímabil. Allt sem ekki hefur þegar verið bókfært á valda tímabilinu birtist nú í yfirlitinu.
- Ef villur eða viðvaranir eru, til dæmis rangar kennitölur eða ef greiðanda vantar, birtast villuskilaboð í rauðu eða viðvaranir í appelsínugulu í miðjunni. Farðu yfir villurnar og viðvaranirnar og leiðréttu þar sem þörf er á.
- Hægt er að smella á örina við hliðina á greiðanda a til að fá frekari upplýsingar
- Smelltu á "Upplýsingar" til að sjá hvað reikningurinn inniheldur.
- Ef eitthvað er ekki rétt getur þú smellt á + táknið við þá röð sem á að leiðrétta til að laga upphæðina handvirkt.
- Þegar þú ert búinn merkir þú alla sem eiga að fá reikning
- Smelltu svo á „+ Bókfæra“
Í glugganum sem birtist velur þú gjalddaga, setur inn texta sem á að sjást á reikningunum og staðfestir að allar nauðsynlegar breytingar/aðlaganir hafa verið gerðar.
Smelltu á „Bókfæra“ til að stofna og bóka færsluna.
Sjá um bókfærslurnar
- Undir flipanum „Bókfært“ fara allar bókfærðar færslur
- Þú getur smellt á litla örina við bókfærsluna til að sjá allar reikningalínurnar
- Smelltu á „Upplýsingar" (Details) til að fá upplýsingar um það sem hefur verið bókfært fyrir hvern og einn
- Allt eftir því því hvernig skráin er send til bókhaldseildar getur þú annað hvort smellt á punktana þrjá til að hefja SFTP-flutning á skránni eða hlaðið henni niður til að senda hana til bókhaldsdeildarinnar