Hvað? Notendur geta búið til sjálfstæða bókun í stundaskrá sinni til að skrá aðrar athafnir en kennslu, til dæmis fundi eða skipulagstíma.
Við gerð slíkrar bókunar velur notandi bókunartegund. Kerfið býður upp á nokkrar fyrirfram skilgreindar tegundir, en einnig er hægt að búa til sérsniðnar bókunartegundir sem henta ykkar starfsemi.
Dæmi um bókunartegundir:
- Fundur
- Skipulagstími
- Ferðir
Af hverju?
- Til að fá betri yfirsýn yfir stundaskrá kennara
- Til að greina hvernig vinnutími skiptist
- Til að halda skipulagi skýru og samræmdu
Hvernig?
Farðu í Stillingar → Bókun → Bókunartegundir
👉 Kerfið inniheldur nú þegar 9 fyrirfram skilgreindar bókunartegundir sem ekki er hægt að eyða, en hægt er að bæta við eigin.
- Smelltu á “+ Stofna”
- Sláðu inn heiti
- Veldu lit sem birtist fyrir þessa bókun í stundaskrá kennara
- Veldu hvaða skólaársáætlun bókunartegundin tengist
- Hakaðu við ef þessar bókanir eigi að teljast sem vinnutími
- Smelltu á “Stofna”
Notendareitir
Hægt er að bæta notendareitum við bókunartegundir, til dæmis til að hengja við skrár eða skrá frekari upplýsingar.
Svona bætir þú við notendareitum:
- Smelltu á örina við viðkomandi bókunartegund
- Stofnaðu eða breyttu notendareitum
Dæmi:
Þú býrð til bókunartegund sem heitir Skipulagsdagur. Nú getur þú bætt við notendareit af gerðinni Skrá, svo hægt sé að hengja við dagskrá eða fundargögn við þessa bókunar tegund.
Þegar notandi síðan stofnar sjálfstæða bókun með bókunartegundinni Skipulagsdagur getur hann smellt á pennatáknið til að breyta bókuninni. Þá birtist notendareiturinn og notandinn hefur möguleika á að hlaða upp skrá.
📎 Allir notendur sem tengdir eru bókuninni hafa aðgang að skránni.
Fjarlægja bókunartegundir eða notendareiti
- Bókunartegundir:
Smelltu á punktana þrjá hægra megin og veldu að gera bókunartegundina óvirka - Notendareitir:
Smelltu á ruslafötutáknið til að eyða reitnum