Greinar um þetta efni

Stofna sjálfstæðar bókanir

Hvað? Auk áfanga geturðu einnig bætt öðrum bókunum inn í stundaskrána, svo sem fundum, sýningum, skipulagstíma og öðru.

Af hverju? Sjálfstæð bókun tengist annarri kennsluáætlun en þeirri sem notuð er fyrir kennslustundir. Þetta gerir þér kleift að bæta inn fundum, sýningum, æfingum og öðru líka um helgar og í fríum.

Með því að skrá bókanir með ólíkum bókunartegundum í stundaskrá færðu góða yfirsýn yfir allar vinnutengdar athafnir og það er auðveldara að fylgja þeim eftir.

Hvernig? Tvöfaldur smellur í stundaskránni þar sem þú vilt stofna bókun sem er ekki kennslustund, til dæmis fund eða viðburð.

Veldu Stofna sjálfstæða bókun.

  1. Veldu bókunartegund
  2. Gefðu bókuninni nafn
  3. Sláðu inn fjölda mínútna
  4. Sláðu inn upphafsdagsetningu
  5. Sláðu inn upphafstíma
  6. Ef bókunin á að endurtaka sig, hakaðu þá í reitinn “Endurtekning” og veldu endurtekningareglu, ef engin endurtekning getur farið næst í punkt 9
  7. Ef bókunin á að vera Áframhaldandi, veldu það og farðu í punkt 9. Ef bókunin á að endurtaka sig í ákveðinn fjölda skipta og síðan hverfa úr stundaskránni, veldu fjölda skipta hér.
  8. Sláðu inn fjölda skipta. Til hægri við reitinn sérðu hvenær bókunin endar.
  9. Veldu kennslutað
  10. Smelltu á “Næsta” ef þú vilt bæta kennara og/eða nemendum við bókunina. Annars geturðu valið að “Vista bókun” eða “Vista og opna bókun”.

Ef þú bætir kennara við bókunina birtist hún einnig í þeirra stundaskrá.

Ef þú bætir nemendum við bókunina er hægt að skrá mætingu fyrir þessa nemendur á sama hátt og gert er fyrir kennslustundir. 

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg