Hvað þýðir það?
Kennarar og ofurnotendur geta stofnað bókun (kennslustund) í stundaskrá kennaranna sem síðan er hægt að bæta við nemendum í.
Af hverju ætti ég að gera það?
Það er nauðsynlegt að stofna bókun í stundaskrá kennara svo kennarar geti dregið nemendur inn í stundaskrárnar sínar.
Það er einnig hægt að birta þessar bókanir í námsframboði skólans, þannig að nemendur geti sótt um eða skráð sig á ákveðnum degi og tíma hjá ákveðnum kennara. Nánari upplýsingar má finn í leiðbeiningunum Birta í námsframboði.
Hvernig stofna ég bókun?
Skref 1. Stofna kennslustund
- Farðu í stundaskrá kennara
- Tvíklikkaðu í stundaskrána þar sem þú vilt setja inn bókun
- Veldu Stofna kennslustund
Þar á eftir fyllir þú út allar upplýsingar
- Hvaða námsgrein tilheyrir bókunin
- Hægt er að gefa bókuninni nafn
- Er það ofurnotandi eða kennari sem á að vera eigandi bókunarinnar (eigandi mun sjá bókunina í sinni stundaskrá)
- Athugaðu hvort að mínútufjöldinn sé réttur og settu inn upphafsdag og tíma
- Hversu oft á kennsla sér stað
- Lengd ákvarðar hvort að bókunin er tímabundin með ákveðin fjölda skipta eða hvort hún er áframhaldandi, þar til nemandi velur að hætta (eða skólinn)
- Velja kennslustað
Smella á "Næsta"
Skref 2. Uppsetning fyrir námsframboð
Námsstig (ef það er virkt hjá ykkur) og umsóknartegund verður alltaf að setja inn óháð því hvort að bókunina á að birta eða ekki. Ath. að engar bókanir eru sjálfkrafa birtir í námsframboði. Það er gert af ofurnotanda á öðrum stað.
- Setja inn námsstig fyrir bókunina. Námsstig eru sett upp sérstaklega fyrir hvern og einn skóla undir stillingar. Ef þau eru virkjuð munu þau birtast sem sía í námsframboði.
- Umsóknartegund ákvarðar hvort áfanginn leyfi umsóknir eða hvort hægt sé að skrá sig beint í áfangann.
- Aðeins biðlisti: Aðeins hægt að skrá sig á biðlista fyrir þessa umsókn
- Hámarksfjöldi nemenda: Setur hámark á fjölda nemanda sem geta skráð sig beint í bókunina. Þegar fjölda er náð er ekki hægt að skrá sig lengur.
- Hámarksfjöldi nemenda með biðlista: Setur hámark á fjölda nemenda og þegar fjölda er náð fara nemendur eftir það á biðlista.
- Ótakmarkaður fjöldi nemenda: Ef það eru engin takmörk á því hversu margir geta skráð sig beint í bókunina.
- Hægt er að setja inn lýsingu fyrir bókunina, það er valfrjálst
- Hægt er að virkja aldurstakmörk, þá er skilgreint á milli hvaða ára umsækjandi er fæddur
- Hægt er að ákveða hvaða breytur eru sýnilegar í námsframboði, ef það er strik yfir augntáknið mun sú breyta ekki vera sýnileg.
- Ef þú ætlar að bæta við nemendum og kennurum í bókunina (þarft að hafa réttindi), smellir þú á Næsta annars smellir þú að Vista og opna bókun eða Vista (og loka)
Afrita bókun
Ef þú ert að búa til margar bókanir innan sömu námsgreinar, getur þú afritað bókun sem þú ert búin að stofna, í stað þess að fara í gegnum öll skrefin aftur.
- Smelltu á bókunina og síðan á afritunartáknið. Þá mun afrit birtast við hliðina á upprunalegu bókuninni í stundaskránni.
- Til að færa bókunina á annan tíma þarftu að vera í Skipulagsham
- Þú getur gert eins mörg afrit og þú vilt innan sömu námsgreinar.
- Það er alltaf hægt að aðlaga bókun með því að velja penna táknið (sjá leiðbeiningarnar Breyta áfanga).