Greinar um þetta efni

Umsjón með biðlista

Hvað? Biðlistinn hjálpar þér að sjá á einfaldan hátt hvaða nemendur hafa sótt um nám í skólanum. Hann veitir skýra yfirsýn yfir eftirspurn og auðveldar utanumhald skráninga þegar pláss losnar.

Af hverju? Biðlistinn gerir þér kleift að sjá hversu margir nemendur bíða eftir plássi og skipuleggja þá á skilvirkari hátt. Hann styður stundasskáagerð með því að tengja nemendur beint við kennara, gerir þér kleift að senda skilaboð til nemenda, sía eftir mismunandi gerðum biðlista og halda utan um gagnlegar athugasemdir um umsækjendur.

Hvernig?

Biðlistinn veitir skýra yfirsýn yfir hvaða nemendur hafa fengið úthlutaðan kennara og hverjir ekki. Nemendur sem hafa fengið kennara birtast vinstra megin við stundaskrá kennarans og er einfalt að draga þá inn í bókanir.

Þú getur síað nemendur eftir gerð biðlista, námsgreinar, kennslustaðar eða heimaskóla, valið nemendur til að úthluta eða fjarlægja úthlutun, sent skilaboð til valinna nemenda og uppfært stöðu nemanda á biðlistanum.

  1. Þú finnur Biðlistann með því að smella á „Úthlutun“ í valmynd og velja síðan „Biðlisti“.

  2. Hér getur þú síað eftir „Kennara“, „Biðlistategund“, „Námsgrein“, „Staðsetningu“ eða „Heimaskóla“.

Upplýsingar og athugasemdir

  1. Með því að smella á örina vinstra megin við nafn nemandans getur þú skoðað upplýsingar um nemandann og yfirlit yfir þær námsgreinar sem nemandinn er í eða hefur áður sótt.

  2. Hér er einnig hægt  bæta við athugasemd tengda umsókninni. 

Þegar þú smellir á “Bæta við athugasemd færðu upp glugga þar sem hægt er að:

  1. Skrifa athugasemdina.
  2. Velja hvaða réttindahópar geta séð athugasemdina (eins og er er aðeins hægt að merkja ofurnotendur og/eða kennara, ekki forráðamenn eða nemendur).
  3. Hægt er að merkja hana sem mikilvæga (þá fær hún rauðan texta).
  4. Einnig er hægt að bæta við skjali.
  5. Síðan er smellt á “Vista.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg