Hvað? Að ofurnotandi geti sett nemendur beint á biðlista án þess að hann þurfi sjálfur að senda inn umókn.
Af hverju? Ef forráðamaður getur ekki sótt sjálfur um fyrir hönd nemandans getur ofurnotandi aðstoðað með því að setja nemandann beint á biðlista.
Hvernig bæti ég nemanda á biðlista?
Farðu í prófíl nemandans.
Skref 1: Farðu í prófíl nemandans undir flipanum „Yfirlit“
- Smelltu á “+ Setja á biðlista”.
- Fylltu út viðeigandi upplýsingar fyrir biðlistaskráningu nemandans.
- Smelltu á “Setja á biðlista” til að staðfesta.