Greinar um þetta efni

Staðfesta sæti á biðlista

Hvað? Með stillingum og sjálfvirkum tölvupóstsendingum er hægt að hvetja forráðamenn til að fara inn og staðfesta umsóknir sínar með reglulegu millibili. Þú hefur síðan möguleika á að hreinsa burt umsóknir sem ekki hafa verið staðfestar.

Af hverju?

Til að tryggja að biðlistinn sé alltaf uppfærður.

Hvernig?

Hafa samband við SpeedAdmin þjónustuverið og biðja um að fá aðgang að eiginleikanum „Staðfesta endurinnriun á biðlista“ (Feature: F_WAITINGLIST_REREGISTRATION).

Þegar eiginleiki er virkur birtist flipi sem heitir „Endurinnritunaruppsetning“ undir „Stillingar > Námsframboð > Biðlistastillingar“.

Skref 1: Stilla tímabil

Smelltu á flipann „Endurinnritunaruppsetning". Hér getur þú stillt hversu oft umsóknir á að staðfesta, til dæmis á 180 daga fresti eða á 365 daga fresti.

Skref 2: Stofnaðu áminningu

  1. Smelltu á „+ Stofna“ til að stilla sjálfvirka áminningu til forráðamanna um að staðfesta umsóknir.
  2. Gefðu áminningunni nafn
  3. Stilltu hversu mörgum dögum fyrir lokafrest áminningin á að vera send
  4. Veldu hvaða tölvupóstsniðmát á að nota fyrir áminninguna
  5. Smelltu á „Stofna“

Táknið við hliðina á "Sniðmát" í listanum leiðir þig á „Tölvupósts- og SMS sniðmát“ þar sem þú getur búið til, breytt eða valið sniðmát.

Skref 3: Settu fastan staðfestingardag (valfrjálst)

Sem viðbót við að stilla staðfestingartímabil er einnig hægt að tilgreina fastan staðfestingardag. Þetta getur þú gert ef þú vilt að allir á biðlistanum staðfesti sæti sín fyrir ákveðinn dag.

Smelltu á hnappinn „Setja einn lokafrest“.

  1. Í glugganum sem birtist skaltu slá inn fjölda daga frá deginum í dag sem forráðamenn hafa til að staðfesta sæti á biðlista. Undir fellivalmyndinni má sjá annars vegar síðasta lokafrest sem var settur fyrir staðfestingu (Frestur var seinast settur) og hins vegar nýja lokafrest sem verður gildur eftir vistun (Næsti lokafrestur verður).
  2. Smelltu á „Vista“.

Engin sjálfvirk skilabobð er send til forráðamanna þegar settur er fastur frestur en borði birtist í sýn forráðamanna.

Skref 4: Forráðamaður staðfestir

Forráðamenn sem þurfa að staðfesta umsóknir munu sjá borða með textanum „Endurinnriutn er opin bæði fyrir virkt nám og biðlista“ á aðalsíðu sinni.

Þegar forráðamaður smellir á borðann birtist gluggi með valmöguleika fyrir hverja umsókn. 

  • Ef nemandinn verður of gamall fyrir áfangann/bókunina á núverandi almanaksári birtist skilaboð um að sæti sé ekki hægt að staðfesta.
  • Ef áfanginn hefur lokadag birtast skilaboð um að ekki sé hægt að staðfesta plássið.
  • Ef eiginleikinn „Staðfesta endurinnritun" er virkur birtast bæði virkar umsóknir á biðlista og virkir áfangar nemanda í glugganum.

Skref 5: Hafa umsjón með óstaðfestum umsóknum

Sem ofurnotandi geturðu smellt á „Biðlisti“ í valmyndarlínu og síðan áEndurinnritun á biðlista“ til að sjá hvaða umsóknir hafa ekki enn verið staðfestar.

Þú sérð hvenær staðfesting þarf að hafa boristr og hefur möguleika á að meðhöndla umsóknir sem ekki hafa verið staðfestar innan tímarammans.

  1. Undir Tímabil veldu "Liðið"

  2. Hakkaðu við alla nemendur. Ef um fleiri en 25 línur er að ræða birtist blár borði efst á síðunni þar sem þú getur smellt á „Velja allar XXXX línur“
  3. Veldu hvort þú viljir staðfesta umsóknirnar fyrir nemendurna eða fjarlægja þá af biðlistanum

Umsóknir sem eru fjarlægðar á þennan hátt eru gerðar óvirkar.

Umsóknir sem hafa verið fjarlægðar má enn sjá á prófíl nemanda.

Það er hægt að virkja umsókn aftur með því að fjarlægja hak við „Virk“ undir „Biðlista“ á prófíl nemandans, smella á punktana þrjá hægra megin í línunni og velja „Endurvirkja biðlista“.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg