Greinar um þetta efni

Legacy - Orlofs- og skólaársáætlun

Yfirlit

Skólaársáætlun er mikilvæg fyrir nokkrar aðgerðir í SpeedAdmin:

  • Að búa til ný skólaár – (upphaf/lok)
  • Orlofs – og frídagaskipulagning
  • Gerð stundaskráa fyrir alla kennslu auk annarra bókana
  • Útreikninga á öllum vinnutímakröfum kennara
  • Skráning og talning á vinnutímum

Það er því mikilvægt að skólaársáætlanir sé rétt settar upp og þeim viðhaldið ef breytingar koma upp.

Með skólaársáætlun er hægt að skipuleggja sameiginlega frídaga, almenna frídaga og núlldaga, fyrir allar skólaársáætlanir og þar með allar námsgreinar í skólanum. Að auki, með mismunandi áætlunum er hægt að skilgreina vinnudaga með og án kennslu og úthluta þeim á mismunandi nám. 

Uppsetning skólaársáætlunar

Grunngögn > Orlofs- & skólaársáætlun

  1. Setja upp sumarleyfi 
  2. Fyrir hverja skólaársáætlun eru vinnudagar með og án kennslu skilgreindir
  3. Stofna fleiri skólaársáætlanir og úthluta á nám, þar sem þær eiga að gilda
  4. Hreinsun/eyðing af áætlunum ásamt bókunum

1.Uppsetning á frídögum

Allar áætlanir hafa sömu frídaga

Orlofsdagar

Orlofsdagar eru skilgreindir með því að velja ”Orlofsdagar” í vinstri valmynd, síðan þarf að smella á hengilásinn (ef hann er rauður og lokaður er ekki hægt að vinna í dagatali) og þá er hægt að merkja þá daga sem teljast orlofsdagar.

Til að velja fleiri en einn samliggjandi dag er músartakkanum haldið inni og dregið yfir þá daga sem á að velja. 

Til að velja aðskilda daga er valinn hvern dagur fyrir sig.

Þegar músartakkanum er sleppt. Er sett inn nafn á fríinu og valinn litur.

Frídagar eru dregnir frá  þegar vinnutímar eru reiknaðir út frá launaskilyrðum skólaársins. Sjá nánari upplýsingar neðar undir "Tímaútreikningur".

Opinberir frídagar

Allir heilir lögbundnir frídagar eins og þeir eru skilgreindir í samningnum verða fyrirfram skilgreindir undir "Frídagar". Ekki er hægt að bæta við eða breyta lögbundnum frídögum:

2. Fyrir hverja skólaársáætlun eru vinnudagar með og án kennslu skilgreindir

Hægt er að skilgreina vinnudaga sem alla daga sem ekki eru skilgreindir sem frídagar.

Það er mögulegt að gera mun á dögum sem eru vinnudagar með kennslu og vinnudagar án kennslu (starfsdagar)

Kennslubókanir verður sjálfkrafa aðeins hægt að bóka á daga sem eru merktir sem kennsludagar.

Veldu viðkomandi tegund vinnudags - ýttu á músina og dragðu yfir viðkomandi dag. Hægt er að merkja laugardag og sunnudag sem vinnudaga með því að smella á hvern fyrir sig.

Þegar kennsla er bókuð verður kennslunni dreift yfir þá daga sem merktir eru með kennslu.

3. Stofna fleiri skólaársáætlanir og úthluta til náms, þar sem þær eiga að gilda

Ef það eru mismunandi skólaársáætlanir fyrir mismunandi námsgreinar er hægt að stofna fleiri og setja þær inn á tiltekna námsgrein. Bókunum er ekki eytt/bætt við sjálfkrafa þegar ný áætlun er sett á nám, aðeins þegar námið er bókað í ”Búa til stundaskrá”.

Þegar settir eru inn frídagar eða vinnudagar án kennslu getur það haft áhrif á bókanir sem nú þegar eru til staðar, og því mun birtast viðvörun efst í hægra horni.

Bókunum eru ekki eytt eða þær fluttar fyrr en maður velur það handvirkt á listanum undir ”Athuga bókanir utan kennslu” og þar á eftir að smella á ” Úthluta sjálfkrafa skráðum bókunum”. Listinn sýnir þær bókanir sem verða fyrir áhrifum af breytingunni og þarf því að notast á hverja breytingu/áætlun.

Tímaútreikningur

Útreikningur á raunverulegu ársviðmiði er reiknað á grundvelli vinnudaga á launatímabilinu * 8 klukkustundir (á virka daga) * launahlutfall (x / 40).

 

Útreikninginn er hægt að sjá hjá kennara í Tímar > Vinnutímar:

 

Hægt er að sjá allt skólaárið eða velja tímabil út frá dagsetningu

 

Útreikningurinn á bakvið sést með því að ýta á "i" við hliðina á tölunni. Fyrst er fjöldi daga reiknaður - hér eru það aðeins skráðir "frídagar" sem skipta máli fyrir útreikninginn:

Hér eftir er hver dagur umreiknaður í tíma, þar sem tekið er tillit til starfshlutfalls

Vinnutímaskráning

Breyta stundaskrá > Velja ”Vinnutími”

Það er hægt að velja að vinnutímaskráning gildi allt skólaárið, komandi, aðeins valda dagsetningu OG hvort að það sé fyrir kennsludaga, vinnudaga án kennslu eða bæði.

Þannig er auðveldara að bæta við og sérsníða réttan vinnutíma fyrir hvern kennara.

Ef þú smellir á augntáknið færðu yfirlit yfir valda áætlun.

Það er hægt að sjá vinnutíma eftir vinnutímategund, auk þess er hægt að sjá það myndrænt.

Með því að smella á Sýna vikuyfirlit er hægt að sjá tíma á viku, sem einnig er hægt að finna hjá kennara undir Tímar > Vinnutímar, þar sem hægt er að sjá yfirlit fyrir allt árið.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg