Greinar um þetta efni

Legacy - Stofna nýtt skólaár

Þessar leiðbeiningar eru fyrir ofurnotendur

Hér getur þú séð skref fyrir skref hvernig á að setja upp nýtt skólaár og endurinnritun

Stofnun nýs skólaárs

Mælt er með að gera þetta í eftirfarandi röð:

1. Stofna nýtt tímabil (Grunngögn > Stofna skólaár)

  •  Setja inn nýtt skólaár
  • Upphafs- og lokadagur eru fastir þannig að það þarf ekki að spá í þeim.
  • Velja lit fyrir nýtt skólaár.
  • Árlegt viðmið sett inn - Kennslutímafjöldi kennara í fullu starfi.

 2. Setja inn nýja Orlofs- og skólaársáætlun (Grunngögn > Orlofs- og skólaársáætlun) – Vera í komandi skólaári:

  • Setjið inn orlofsdaga 
  • Frídagar nemenda – Munu sjást í appi og forsíðu nemanda sem almennir frídagar fyrir skólann
  • Skólaársáætlun -Standard- Setja inn kennsludaga og starfsdaga.

Ef lásinn er rauður er ekki hægt að vinna í dagatalinu, smellið á lásinn, þá verður hann grænn og hægt að vinna með dagatalið

3. Afrita gögn skólaárs (Grunngögn > Afrita gögn skólaárs)  – Vera í núgildandi skólaári

  • Afrita hóptíma (flipi)
    • Haka við þá hóptíma sem á að flytja yfir á næsta skólaár
    • Ef hóptími er ekki fluttur mun hann þó stofnast sjálfkrafa á nýju skólaári þegar/ef nemandi endurinnritar sig í hann.
  • Afrita gögn kennara (flipi)
    • Haka við þau gögn kennara sem á að flytja yfir á næsta skólaár

4. Setja inn gjalddaga fyrir nýja skólaárið (Grunngögn > Gjaldskrá)

Hægt er að afrita frá síðasta skólaári

5. Setja inn skólagjöld (Grunngögn > Skólagjald)

Hægt er að afrita fá síðasta skólaári og þá er nóg að uppfæra gjaldið sjálft og mögulega dagsetningar ef þær breytast;

Þegar nýtt skólaár er klárt getur þú sett upp endurinnritun nemenda, sjá Endurinnritun

 

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg