Greinar um þetta efni

Færa eða afrita nemendur milli bókana

Hvað?

Þú getur fært eða afritað einn eða fleiri nemendur frá bókun í þinni stundaskrá til annarrar bókunar í þinni eða stundaskrá annars kennara.

Þú getur fært/afritað nemendur milli kennslubókana, ekki milli annarra bókana eins og t.d. tónleika.

Af hverju?

Aðgerðin til að færa nemendur er sérstaklega gagnleg þegar maður vill færa marga nemendur í einu frá einni bókun til annarrar. Að auki er maður ekki takmarkaður við bókanir í eigin stundaskrá heldur er hægt að færa nemendur yfir í bókanir annarra kennara.

Aðgerðin til að afrita nemendur getur þú notað ef nemendur í einni bókun eiga einnig að vera með í öðrum bókunum. Mundu að:

  • Nemendur sem eru afritaðir inn í bókanir með gjaldi fá gjald fyrir þessar bókanir
  • Ef þú afritar nemendur inn í bókun hverfa þeir ekki af biðlista fyrir bókunina/áfangann

Hvernig?

Til að geta fært og afritað nemendur milli bókana þarf réttindin MANAGE_ALL_BOOKINGS.

Þetta eru skrefin:

  1. Farðu í stundaskránna og veru viss um að vera í þeirri viku sem færslan á að gilda frá
  2. Smelltu á bókun
  3. Smelltu á blýantinn til að breyta bókuninni

  4. Smelltu á flipann "Nemendur"
  5. Veldu þá nemendur sem þú vilt færa eða afrita
  6. Smelltu á "Færa nemandur" eða "Afrita nemendur"

Til að færa nemendur

  1. Veldu þá kennslustund sem þú vilt færa nemendurna til
  2. Smelltu á "Færa"

Nemendurnir eru fluttir yfir í nýju bókunina frá og með valdri dagsetningu.

Afrita nemendur

  1. Veldu þá kennslustund sem þú vilt afrita nemendurna til
  2. Smelltu á "Næsta"

  3. Veldu valkost fyrir skilaboð
  4. Smelltu á "Vista"

 

Nemendurnir eru afritaðir til nýju bókunarinnar frá og með valdri dagsetningu.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg