Hvað felst í því að draga nemendur í stundaskrá?
Þegar nemandi hefur sótt um og er á biðlista fyrir áfanga, getur ofurnotandi úthlutað nemandanum til ákveðins kennara. Nemendum sem hefur verið úthlutað til kennarans birtast vinstra megin við stundaskrána hans þegar skipulagshamur er valinn.
Af hverju ætti ég að nota þennan möguleika?
Þetta er einfaldasta og fljótlegasta leiðin til að bæta nemendum í stundaskrána.
Hvernig dregur maður nemanda inn í stundaskrá?
Það eina sem þarf að gera er að velja nemandann og draga hann inn í stundaskrána. Annaðhvort inn í bókun sem þegar er til eða á auðan stað í stundaskránni til að stofna nýja bókun fyrir nemandann.
Svona gerir þú:
- Farðu í stundaskrá kennarans og vertu viss um að þú sért í þeirri viku þar sem nemandinn á að byrja.
- Smelltu á flipann Skipulagshamur.
- Vinstra megin við stundaskrána birtast allir nemendur sem kennarinn hefur fengið úthlutað. Veldu nemanda og dragðu hann í bókun í stundaskránni, eða settu hann á tóman stað í stundaskránni til að búa til nýja bókun. Áfanginn sem skráður er fyrir neðan nafn nemandans ætti að samsvara áfanganum í bókuninni sem nemandanum er bætt í. Til dæmis, ef það stendur Tónfræði undir nafni nemandans, ætti nemandinn að vera dreginn inn í bókun í námsgreininni Tónfræði.
Þegar þú sleppir nemandanum í bókun eða inn í stundaskrána opnast glugginn „Setja úthlutaðan nemanda í stundaskrá“.
Þar geturðu breytt upphafsdegi, upphafstíma og staðsetningu bókunarinnar ef þörf er á.
Þegar þú ert sátt(ur), smelltu á „Næsta“
Í næsta skrefi velurðu hvort þú viljir:
- Bæta nemandanum við bókunina án þess að senda skilaboð
- Bæta nemandanum við bókunina og senda skilaboð
- Bjóða forráðamanni að samþykkja tilboðið áður en nemandi er skráður (hann verður tímabundið skráður í áfangann)
Að lokum smellirðu á „Vista“.