Greinar um þetta efni

Birta kennslustund með boðslóð

Hvað: Hægt er að birta kennslustund með lokaðri slóð. Þá verður kennslustundin ekki sýnileg í námsframboði, en slóð stofnuð sem hægt er að nota til að senda á  útvalda nemendur. Með slóðinni getur nemandinn fengið aðgang að kennslustundinni og sótt um eða bókað pláss.

Af hverju: Notaðu þessa aðgerð ef þú ert með kennslustund sem aðeins ákveðnir nemendur geta sótt um. Til dæmis væri hægt að gefa tónfræði nemendum val um tímasetningu með þessum hætti eða ef um framhaldsáfanga eða sérhæfðan áfanga af einhverju tagi er um að ræða.

Hvernig: Fylgdu skrefunum hér að neðan til að birta kennslustund með lokaðri slóð:

  1. Smelltu á “Skipulagning” í valmynd og þar undir “Birtingarstýring umsóknarsíðu” og veldu flipann "Kennslustund"
  2. Finndu kennslustundina sem þú vilt birta með lokaðri slóð
  3. Hakaðu við kennslustundina
  4. Smelltu á “Stofna boðslóð”

Settu inn þá dagsetningu sem þú vilt að birtingin hefjist, gefðu slóðinni nafn og smelltu síðan á “Birta”.

Ath. Þegar þú gefur slóðinni nafn skaltu ganga úr skugga um að nafnið sé nægilega sértækt fyrir viðkomandi kennslustundir svo þú getir auðveldlega fundið hlekkinn síðar. Til dæmis er ekki nóg að skrifa “Tónfræði” heldur frekar “Tónfræði 102, nafn kennara, tímasetningarval”.

  1. Til að hlaða niður og senda hlekkinn, farðu í flipann “Boðslóð”.
  2. Veldu slóðina í fellilistanum “Boð”.
  3. Smelltu á slóðina undir “Aðeins boð”.

Þá ferðu yfir í námsframboðið þar sem þú sérð að kveikt er á "Boðslóð"

Frá námsframboðinu getur þú afritaðu slóðina og sent hana til nemenda/forráðamanna sem munu þá geta sótt um þá áfanga/kennslustundir sem hlekkurinn inniheldur.

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg