Hvað? Námsframboðið sýnir allar námsgreinar og kennslustundir sem skólinn býður upp á. Hér sækja forráðamenn um pláss eða skrá nemanda beint í kennslustund/hóp, allt eftir því hvaða möguleika skólinn býður upp á.
Af hverju? Svo að umsækjendur geti fundið tilboð og kennslustundir í námsframboði þurfa þau fyrst að vera sýnileg og í boði.
Hvernig? Það hægt að birta námsgreinar/kennslustundir á fleiri en einn hátt:
• Námsgreinar – þegar nemendur sækja um pláss án þess að dagsetning og tími kennslu séu skilgreind (hefðbundin umsókn).
• Kennslustundir – hjá kennara, þar sem nemendur geta sótt um eða bókað pláss beint á ákveðnum degi og tíma.
Birta eftir námsgrein
Skref 1
Farðu í Skipulagning → Birtingarstýring umsóknarsíðu og veldu flipann Biðlisti.
Ef smellt er á stöðuna „Ekki birt“ er hægt að sjá lista yfir allar námsgreinar sem ekki birtast í námsframboðinu. Hver námsgrein birtist í sér línu með upplýsingum um kennslustað, lengd kennslustundar, aldurssvið o.fl. Ath. að ef þið bjóðið upp á fleiri en einn kennslustað mun sama námsgreinin birtast fyrir hvern kennslustað.
Notaðu síurnar efst á síðunni til að þrengja listann, t.d. eftir kennslustað.
Hakaðu við þær námsgreinar/tilboð sem þú vilt birta og smelltu á „Birta valið“.
Birta ákveðna kennslustund
Skref 1
Farðu í Skipulagning → Birtingastýring umsóknarsíðu og veldu flipann „Kennslustund“.
Smelltu á litlu örina vinstra megin við kennslustundina til að sjá nánari upplýsingar, t.d. hvaða umsóknartegund er notast við. Hún ákvarðar hvort nemendur geti skráð sig beint í kennslustund eða þurfi að sækja um (og fara á biðlista).
– Hámarksfjöldi nemenda: Nemendur bóka og fá sjálfkrafa pláss í kennslustundina svo lengi sem laus pláss eru í boði.
– Hámarksfjöldi nemenda með biðlista: Sama og hér að ofan, en ef kennslustundin er full getur nemandinn enn sótt um, en fer á biðlista.
– Aðeins biðlisti: Nemendur sækja um kennslustundina og fara beint á biðlista.
- Smelltu á penna táknið til að opna bókun og laga upplýsingar ef þörf er á.
- Hakaðu við þær bókanir sem þú vilt birta og smelltu á „+ Breyta stöðu“. Þar breytir þú stöðunni í „Birt“ og getur valið að birta strax eða setja inn dagsetningu.
Einnig er hægt að birta kennslustundina með boðslóð, ef þú vilt aðeins bjóða ákveðnum nemendum að skrá sig. Nánari upplýsingar má finna í leiðbeiningunum „Birta kennslustund með boðhlekk“.
Ekki er hægt að setja hámarksfjölda nemenda eða hámarksfjölda nemenda með biðlista á 0. Áfangi verður ávallt að innihalda að minnsta kosti 1 pláss.