Greinar um þetta efni

Birta kennslustund með boðshlekk

Hvað: Hægt er að birta kennslustund með lokuðum hlekk. Þá verður kennslustundin ekki sýnileg í námsframboði, en hlekkur stofnaður sem hægt er að nota til að senda á  útvalda nemendur. Með hlekknum getur nemandinn fengið aðgang að kennslustundinni og sótt um eða bókað pláss.

Af hverju: Notaðu þessa aðgerð ef þú ert með kennslustund sem aðeins ákveðnir nemendur geta sótt um. Til dæmis væri hægt að gefa tónfræði nemendum val um tímasetningu með þessum hætti eða ef um framhaldsáfanga eða sérhæfðan áfanga af einhverju tagi er um að ræða.

Hvernig: Fylgdu skrefunum hér að neðan til að birta kennslustund með lokuðum hlekk:

  1. Smelltu á “Skipulagning” í valmynd og þar undir “Kennslustund”
  2. Finndu kennslustundina sem þú vilt birta með lokuðum hlekk
  3. Hakaðu við kennslustundina
  4. Smelltu á “Gera boðhlekk”

Settu inn þá dagsetningu sem þú vilt að birtingin hefjist, gefðu hlekknum nafn og smelltu síðan á “Birta”.

Ath. Þegar þú gefur hlekknum nafn skaltu ganga úr skugga um að nafnið sé nægilega sértækt fyrir viðkomandi kennslustundir svo þú getir auðveldlega fundið hlekkinn síðar. Til dæmis er ekki nóg að skrifa “Tónfræði” heldur frekar “Tónfræði 102, nafn kennara, tímasetningarval”.

  1. Til að hlaða niður og senda hlekkinn, farðu í flipann “Birt”.
  2. Veldu hlekkinn í fellilistanum “Boðhlekkur”.
  3. Smelltu á hlekkinn undir “Pakki”.

Þá ferðu yfir í námsframboðið þar sem þú sérð að “Sérsniðin tilboð” er sett á.

Frá námsframboðinu getur þú afritaðu slóðina og sent hana til nemenda/forráðamanna sem munu þá geta sótt um þá áfanga/kennslustundir sem hlekkurinn inniheldur.

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg