Hvað: Með því að gera leiðbeiningar fyrir kennara aðgengilegar geturðu hjálpað kennurunum að rata um SpeedAdmin, þannig að þeir þekki þær upplýsingar og eiginleika sem skipta máli fyrir hlutverk þeirra.
Af hverju: Kennarar nota SpeedAdmin fyrir færri verkefni en stjórnendur, kannski aðeins til að skoða stundaskrána sína, skrá viðveru og vinnutíma. Leiðbeiningar fyrir kennara eru leiðbeiningar sem ná einmitt yfir þetta afmarkaða hlutverk.
Þó við bjóðum upp á forvalið safn leiðbeininga sem eru sérstaklega ætlaðar kennurum er það á ábyrgð hvers skóla að velja, sækja og afhenda kennurunum þessar leiðbeiningar í samræmi við þarfir og samskiptaleiðir. Hafðu í huga að mismunandi réttindi gefa kennurum mismunandi möguleika á að fylgja leiðbeiningunum, veldu leiðbeiningar í samræmi við það.
Hvernig: Fylgdu skrefunum hér að neðan til að finna leiðbeiningar fyrir kennara og deila þeim með kennurunum þínum.
Skref 1: Finndu leiðbeiningar fyrir kennara
Allar leiðbeiningar fyrir kennara er að finna á Leiðbeiningasíðu Speedamin undir flokknum "Leiðbeiningar fyrir kennara".
Skref 2: Sækja og dreifa leiðbeiningum fyrir kennara
- Opnaðu þær leiðbeiningar sem þú vilt nota og smelltu á prentaratáknið.
- Í nýja glugganum velurðu "Vista sem PDF" sem prentara og smellir á "Vista".
- Nú geturðu vistað leiðbeiningarnar á PDF-formi í tölvunni þinni og gert þær aðgengilegar kennurum í gegnum þá samskiptaleið sem þú kýst (útprentun, tölvupóst o.s.frv.).