Greinar um þetta efni

Flokkun námsleiða í námsframboði (sía í námsframboði)

SpeedAdmin Play

Í SpeedAdmin Play eru "Efni" og "Undirflokkur" notuð til að skipuleggja námsframboðið á skýran og notendavænan hátt. Þau skilgreina hvernig notendur geta síað og fundið rétta námsgrein og/eða kennslustund á umsóknarsíðunni ykkar.

  • Þú sem stjórnandi ákvarðar uppbygginguna
  • Notendir eiga auðveldara með að finna það sem þeir eru að leita að

Munur frá SpeedAdmin Legacy

Í SpeedAdmin Legacy voru "Flokkar" notaðir til að skipta námsgreinum í flokka.

Flokkarnir:

  • Fara með yfir í Play
  • Eru notaðir fyrir innanhúss tölfræði
  • Eru ekki notaðir til að sía í námsframboðinu í Play

Í SpeedAdmin Play eru það efni og undirflokkar sem stýra því sem notendur sjá í námsframboðinu. Ef þú vilt er hægt að setja sömu flokka upp og voru í Legacy.

Ath! Það sem hét námstegund í Legacy heitir nú "Námsleið" í Play

 

Hvernig virkar þessi sía?

Efni eru efsta stigið í síunni í námsframboðinu og það fyrsta sem notandi sér þegar hann vill sía Námsgreinar.

Dæmi um efni:

  • Bóklegt
  • Forskóli
  • Hljóðfæri
  • Söngur

Hvað er átt við með undirflokkar í námsframboði?

undirflokkar falla undir mismunandi efni og gera notendum auðveldara að finna nákvæmlega það hljóðfæri eða annað sem er í boði í tónlistarskólanum. Notandi getur notað síurnar til að finna nákvæmlega það sem umsækjandi vill sækja um.

Dæmi:

  • Efni: Hljóðfæri
  • Undirflokkur: Bassi - Básúna - Fiðla - Flauta osfrv. 

 

Hvernig stofnar maður efni og undirflokka?

  1. Farðu í Stillingar > Námsgrein> Sía fyrir umsóknir
  2. Smelltu á "Stofna"
  3. Gefðu efninu nafn
  4. Smelltu á "Stofna"

  5. Opnaðu litla örina við efnið sem þú bjóst til
  6. Smelltu á "Stofna
  7. Gefðu námsleiðinni nafn
  8. Smelltu á "Stofna"

Endurtaktu fyrir allt efni sem þú vilt bæta við

Af hverju er mikilvægt að hafa vel ígrundaða uppbyggingu?

Hvernig þú skilgreinir efni og undirflokka:

  • ákvarðar hversu skýrt námsframboðið verður
  • auðveldar forráðamönnum og nemendum  að finna það sem leitað er eftir
  • gerir kleift að birta mikið magn námsframboðs án þess að það verði of yfirgripsmikið

Ábending: Reyndu að hugsa eins og umsækjandi þegar þú setur upp síuna.

Hvernig lítur þetta út í námsframboðinu?

Farðu í "Skipulagning > Námsframboð"

  1. Smelltu á  „Námsgrein“ til að opna síuna. Nú birtast öll efni sem hægt er að velja úr.

  2. Smelltu á efni svo undirflokkunin birtist

  3. Smelltu á undirflokk til að sýna allt sem er í boði innan viðkomandi flokks

    Velur þú „Trommur“ þá birtast allir birtir áfangar og kennslustundir með efnið „Hljóðfæri“ og undirflokkinn "Trommur"

    Hægt er að velja fleiri en einn undirflokk í einu.

Hvernig tengist þetta sjálfum námsgreinunum/áföngunum?

Þegar þú stofnar námsgrein í kerfinu:

  • velur þú hvaða Námframboðsíuefni þú vilt nota og hvaða flokkun 

Dæmi:

  • Námsgrein: Myndment
    • Efni: Listgreinar
    • Undirflokkur: Myndmennt

Þetta tryggir að námsgreinin er síuð rétt í námsframboði

 

Samantekt

  • Efni = Aðalflokkunin í námsframboðssíu
  • Námsleið = Undirflokkur sem skilgreinir nákvæmar
  • Taka við hlutverki flokka úr Legacy varðandi birtingu í námsframboði
  • Vel ígrunduð uppbygging gerir leit námsframboði mikið einfaldari
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg