Hvað? Að setja upp mismunandi gjöld í kerfinu og tilgreina á hvaða gjaldtímabili þau eiga að gilda.
Af hverju? Þú þarft að stofna gjöld og tengja þau við mismunandi áfanga til að geta rukkað fyrir kennsluna.
Hvernig?
Stofna gjald
Farðu í Stillingar > Reikningagerð > Gjöld og smelltu á “+Stofna”.
- Settu inn nafn á skólagjaldið
- Veldu greiðslutegund
- Settu inn ársverð, til dæmis 50.000 kr. ef verðið er 25.000 kr. á önn
- Veldu hvort nota eigi gjaldið fyrir námsgrein eða hljóðfæraleigu
- Veldu verðtegund – Á Íslandi er algengast að nota “Verð á gjaldtímabil”
- Láttu reitina fyrir lækkað verð standa tóma til að byrja með
- Smelltu á Vista
Breyta gjaldi
Ef nauðsynlegt er að breyta gjaldi, til dæmis að hækka eða lækka fyrir næstu önn, er það gert eftirfarandi:
Finndu gjaldið undir Stillingar > Reikningagerð > Gjöld
- Smelltu á blýantinn til að breyta gjaldinu fyrir það gjaldtímabil sem nýja gjaldið á að gilda frá
- Breyttu upphæðinni
- Smelltu á” Uppfæra”