Hvað: Vinnutími er gagnlegur stundarskráar eiginleiki sem getur hjálpað til við að halda utan um hvar og hvenær kennari er að vinna.
Af hverju: Með því að skrá vinnutíma kennara má greinilega sjá hvenær og hvort kennarinn geti bætt við nemendum og aðstoðar við að úthluta nemendum í stundaskrá.
Hvernig:
Fylgdu skrefunum hér að neðan til að setja upp vinnutíma á stundaskrá kennara:
Farðu á viðkomandi kennara prófíl annaðhvort í gegnum Leitina eða „Úrræði"
Smelltu á skjöld merkið til að hafa umsjón með viðkomandi kennara
í stundaskrá kennarans skal velja "Vinnutími"
Til að bæta við vinnutíma, tvísmelltu á daginn í stundaskránni til að stofna vinnutíma
Farðu í gegnum hvern lið:
- Skólaársáætlun - Svo að vinnutímarnir fylgja skólaársáætlun
- Skráðu heiti - þetta gæti verið nafn skólans, hljóðfærisins o.s.frv.
- Settu upphafsdagsetningu, upphafstíma og lokatíma
- Hakaðu við ef þetta er endurtekin bókun, þ.e. hvort hún á að koma bara inn 1x eða hvort hún eigi að birtast oftar
- Ef þetta er endurtekin bókun, veldu hversu oft hún á að birtast (t.d. daglega, vikulega, mánaðarlega o.s.frv.), hvort hún sé áframhaldandi eða hvort hún eigi aðeins að standa yfir ákveðinn fjölda skipta
- Veldu staðsetningu/skóla
- Veldu hver á að vera eigandi bókunarinnar (í flestum tilfellum væri það kennarinn)
Smelltu á „Vista“ og vinnutíminn er stofnaður.
Vinnutímnn mun síðan birtast undir flipanum „Vinnutími“ eins og sýnt er á fyrstu skjámyndinni, og einnig í öðrum flipum eins og sýnt er á annarri skjámyndinni sem bakgrunnur.