Greinar um þetta efni

Bæta við viðbótarafslætti

Hvað: Viðbótarafslættir eru allir afslættir sem eru ekki hluti af sjálfvirkum afsláttum. Til dæmis félagslegir afslættir, náms- og þátttökuafslættir, starfsmannaafslættir og þess háttar.

Af hverju: Til að bæta við viðbótarafslætti á einfaldan hátt.  

Hvernig  Áður en hægt er að bæta viðbótarafslætti hjá nemanda þarf afslátturinn að vera skilgreindur og tengdur skólagjaldinu. Ef hann er þegar skilgreindur getur þú farið beint í Skref 3. 
 

Skref 1 - Skilgreina afslátt

Byrjaðu á að skilgreina afsláttinn

Farðu í Stillingar > Reikningagerð > Gjöld og smelltu á rétt gjald

  1. Smelltu á flipann “Afsláttur”
  2. Smelltu á „Breyta afslætti“

Þar sérðu hvernig afslættir fyrir þetta skólagjald eru skilgreindir. Ef afslátturinn sem þú ætlar að nota er þegar skilgreindur getur þú lokað glugganum og haldið áfram í Skref 2. 

  1. Ef afslátturinn er ekki skilgreindur, smelltu á „+Stofna“ til að skilgreina hann.

Í reitnum „+Stofna“:

  1. Settu inn lýsingu/heiti
  2. Veldu bókahaldslykil
  3. Veldu hvort takmörkun eigi að gilda fyrir afsláttinn:
  4. Veldu „Enginn“ ef afsláttur leggst á alla áfanga hjá nemanda
  5. Veldu “Einu sinni á nemanda á hvert gjaldtímabil“ ef afslátturinn á aðeins að koma inn einu sinni á hvert gjaldtimabil
  6. Veldu hvort afslátturinn á að reiknast fyrir eða eftir sjálfvirka afslætti (t.d. systkinaafslátt)
  7. Smelltu á „Stofna“

Skref 2 - Bæta afslætti við gjald

Undir flipanum „Afsláttur“ eru allir afslættir sem þegar hefur verið bætt við tiltekið gjald.

Ef afslátturinn sem þú vilt nota er ekki sýnilegur, smelltu á „+Stofna“

  • Veldu réttan afslátt í fellilistanum undir „Viðbótarafsláttur“
  • Settu inn afslátt annaðhvort í prósentum eða krónum
  • Smelltu á „Stofna“

Nú ættir þú  að sjá afsláttinn á listanum:

Þetta þarf að gera fyrir öll gjöld sem afslátturinn á að gilda fyrir.

ATH! Afslátturinn er ekki settur sjálfkrafa á nemendur þegar honum er bætt  við gjaldið. Þú ert aðeins að gera það mögulegt að úthluta honum til valinna nemenda.

Skref 3 - Úthluta afslætti til nemanda

Þegar afsláttur hefur verið stofnaður og tilgreindur í eitt eða fleiri gjöld, getur þú úthlutað honum til nemanda:

  1. Á prófíl nemandans, smelltu á flipann „Gjaldfærslur“
  2. Undir „Afslættir“, smelltu á „+Stofna“
  3. Veldu réttan afslátt í fellilistanum undir „Viðbótarafsláttur“
  4. Ef nemandi er með fleiri afslætti er hægt að ákveða hvaða afslátt á að reikna fyrst með forgangröðun afslátta
  5. Sláðu inn upphafs- og lokadagsetningu tímabilsins sem afslátturinn á að gilda
  6. Smelltu á „Úthluta“

Smelltu á örina við reikninginn fyrir valda tímabilið, þá sérðu að afslættinum hefur verið bætt við

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg