Hvað? Forráðamenn og nemendur geta sýnt áhuga á áfanga á umsóknarsíðu án þess að þurfa að stofna aðgang í SpeedAdmin.
Af hverju? Þetta getur verið góð leið til að ná til forráðamanna og nemenda sem eiga erfitt með að skrá sig.
Eiginleikann er hægt að nota fyrir fría kennslu þar sem ekki þarf að tengja nemendur/greiðendur við kennslustund, heldur aðeins fá vísbendingu um hverjir vilja taka þátt og geta sent þeim upplýsingar.
Hvernig?
Skref 1: Kveikja á eiginleika
- Farðu í "Stillingar > Námsframboð > Sýna áhuga"
- Kveiktu á efsta rofanum (gera bláan)
- Kveiktu síðan á rofunum þar fyrir neðan út frá hvaða upplýsingar þið þurfið og hvað ykkur er nauðsynlegat til að geta notað þennan eiginleika
Skref 2: Veldu hvað hægt er að sýna áhuga á
Námsgreinar:
- Farðu í " Úrræði > Námsgrein"
- Veldu námsgrein
- Smelltu á blýantstáknið til að breyta
- Hakaðu við reitinn "Virkjað" undir "Sýna áhuga"
- Smelltu á "Vista"
Í námsframboðinu birtist nú hnappur til að sýna áhuga á áfanganum
Bókanir:
- Farðu í stundaskrá og smelltu á bókun
- Smelltu á blýantstáknið til að breyta
- Smelltu á flipann "Námframboðsstillingar"
- Í fellilistanum fyrir Umsóknartegund, veldu "Sýna áhuga"
Í námsframboði hefur nú birst hnappur til að sýna áhuga á bókuninni.
Forráðamenn/nemendur geta sýnt áhuga án þess að þurfa að skrá sig inn eða stofna aðgang. Það eina sem þeir þurfa að gera er að fylla út þær upplýsingar sem þú valdir í skrefi 1.
Þegar þeir hafa smellt á "Senda" fá þeir sjálfvirk skilaboð um að umsókn þeirra hafi verið móttekin og að það verði haft samband.
Tölvupóstsniðmát fyrir sjálfvirku skilaboðin má finna undir Stillingar > Samsktipti > Sniðmát fyrir tölvupóst og SMS og heitir "Staðfesting - Sýna áhuga"
Skref 3: Hafa umsjón með skráningum á 'Sýna áhuga'
Yfirlit yfir nemendur sem hafa smellt á 'Sýna áhuga' má finna í innbakkanum
- Innbakki > Áhugasamir
- Hægt er að leita eftir ákveðinni bókun eða sía út frá námsgrein/staðsetningu
- Einnig er hægt að haka við nemendur og senda skilaboð til að hafa samband við umsækjendur með frekari upplýsingum