Hvað þýðir það?
Sem ofurnotandi geturðu stofnað forráðamenn og nemendur handvirkt.
Af hverju ætti ég að gera það?
Besta leiðin til að fá forráðamenn og nemendur inn í kerfið er að láta forráðamann skrá sig og nemandann í gegnum umsóknarsíðuna. En í sumum tilvikum er það ekki hægt. Þá getur þú sem ofurnotandi bætt forráðamanni og nemanda við handvirkt.
Hvernig nota ég eiginleikann?
Fyrst þarf að stofna forráðamann og svo er hægt að bæta einum eða fleiri nemendum við hjá forráðamanni.
Skref 1 - Bæta við forráðamanni
Farðu til Úrræði -> Forráðamaður
- Smella á + Stofna
- Fylltu út upplýsingarnar. Ef þú vilt ekki skrá kennitölu geturðu fjarlægt hakið við reitinn Athuga kennitölu eða sett inn tilbúna kennitölu. Smelltu á augntáknið við hliðina á reit ef þú vilt að upplýsingarnar séu faldar fyrir öðrum notendum.
- Þegar þú ert búinn, smelltu á Vista
Skref 2 - Bæta við nemanda
- Opnaðu prófíl forráðamanns, smelltu á plús táknið í reitnum Nemendur í hægra horninu.
- Veldu Bæta við nemanda