Hvað? Það þýðir að skrá hljóðfæri í SpeedAdmin og tengja þau við gjald.
Af hverju?
- Til að hafa yfirlit yfir hljóðfæri
- Möguleika á að leigja hljóðfærin út til nemenda, kennara eða skóla
- Búa til hljóðfæraleigusamning fyrir útleigur, með upplýsingum sem eru sóttar úr skráðum hljóðfærum
Hvernig?
Skref 1: Stofna hljóðfærategundir
- Farðu í Stillingar → Hljóðfæri → Hljóðfærategund og smelltu á “+ Stofna”.
- Gefðu hljóðfærategundinni nafn.
- Veldu skólagjald (sjá etv. leiðbeiningar um að stofna eða breyta gjaldi)
- Smelltu á “Stofna”.
Skref 2: Bæta við hljóðfærum
- Farðu í Úrræði → Hljóðfæri og smelltu á “+ Stofna hljóðfæri”.
- Veldu hljóðfærategund.
- Gefðu hljóðfærinu nafn.
- Settu hak í reitinn “Leiguhljóðfæri”
Ath. Það verður að vera hakað í reitinn svo að hægt sé að leigja út hljóðfærið. - Fylltu út aðrar viðeigandi upplýsingar og smelltu á “Stofna”.