Hvað? Að afskrá nemanda úr áfanga þýðir að nemandinn hættir í áfanganum frá tilteknum degi. Eftir þann dag mun áfanginn ekki lengur birtast undir Kennsla á prófíl nemandans. Ef þú fjarlægir hakið við reitinn Virk undir Kennsla, sérðu þó að nemandinn hefur verið skráður í áfangann.
Af hverju? Ef nemandi segir upp námi sínu þá er nauðsynlegt að afskrá hann. Annars heldur nemandinn áfram að vera skráður í áfangann og forráðamaður/fullorðinn nemandi heldur áfram að vera rukkaður fyrir námið.
Hvernig?
- Besta leiðin er að forráðamaður skrái sig inn á SpeedAdmin og segir upp. Ofurnotandi þarf síðan að samþykkja beiðni forráðamannsins.
- Ofurnotandi getur einnig afskráð nemanda beint af prófílnum hans án þess að fá uppsagnarbeiðni frá forráðamanni.
Valkostur 1: Beiðni um afskráningu
Til að forráðamenn geti sagt upp plássi nemandans, þarf fyrst að virkja aðgerðina Leyfa afskráningu undir Stillingar - Afskráningarstillingar - Afskráning. Sjá leiðbeiningarnar: Leyfðu forráðamönnum að óska eftir afskráningu
Eftir það er ferlið svona
Skref 1: Forráðamaðurinn sendir inn uppsögn
- Finnur réttan áfanga á upphafssíðu
- Smella á Valkostir
- Smella á Afskrá
- Í boxinu sem birtist setur forráðamður inn þær upplýsingarnar sem óskað er eftir og smellir á Vista.
- Uppsagnarbeiðni hefur nú verið send inn.
- Forráðamaðurinn fær sjálfvirkan tölvupóst um að beiðnin hafi borist (þú getur séð innihald sniðmátsins Staðfesting á móttöku beiðnar um uppsögn undir Stillingar -> Samskipti -> Sniðmát fyrir tölvupóst og SMS -> Sniðmát SpeedAdmin)
ATH. Nemandinn hefur ekki enn verið afskráður úr áfanganum. Það er fyrst þegar ofurnotandi meðhöndlar beiðnina.
Skref 2: Meðhöndla uppsagnarbeiðni
Nú er komið að ofurnotanda að klára ferlið. Svona er það gert:
- Á forsíðunni (eða bakkanum), smelltu á Uppsagnarbeiðnir
- Veldu þann eða þá nemendur sem þú vilt afskrá
- Smelltu á Afskrá
Skref 3: Ákvarða gjald fyrir áfangann (ef þörf krefur)
Það að nemandinn hættir í áfanga þýðir ekki að gjaldið sé endilega fellt niður. Ofurnotandi þarf því að aðlaga gjaldið handvirkt fyrir nemandann ef:
- Nemandinn er afskráður á meðan á innheimtutímabili stendur
- Reikningar fyrir tímabilið hafa enn ekki verið greiddir
- Nemandinn á ekki að greiða fyrir áfangann
Valkostur 2: Afskrá frá nemendaprófíl
Ef forráðamaðurinn getur einhverra hluta vega ekki sent inn uppsagnarbeiðni eða ofurnotandinn þarf að afskrá nemendur handvirkt af öðrum ástæðum, þá er það gert svona:
Skref 1: Frá prófíl nemandans
- Farðu inn á prófíl nemandans og smelltu á punktana þrjá við hliðina á áfanganum sem á að afskrá nemandann úr
- Smelltu á Afskrá
Skref 2: Fylltu út upplýsingar um afskráningu
- Veldu ástæðu uppsagnar
- Veldu seinasta kennsludag
- Hakaðu við ef þú vilt að að sjálfvirkur staðfestingarpóstur sé sendur á greiðanda (þú getur séð og breytt innihaldi sniðmátsins Staðfesting á uppsögn undir Stillingar -> Samskipti -> Sniðmát fyrir tölvupóst og SMS -> Sniðmát SpeedAdmin)
- . Hakaðu við ef þú vilt að sjálfvirkur staðfestingarpóstur sé sendur á kennara (þú getur séð innihald sniðmátsins Tilkynning til kennara um að nemandi hættir Stillingar -> Samskipti -> Sniðmát fyrir tölvupóst og SMS -> Sniðmát SpeedAdmin)
- Smelltu á Vista
Skref 3: Hvað á að gera við tóma bókun (ef þörf krefur)
- Ef engir nemendur eru eftir í bókuninni eftir að þú hefur afskráð nemandann, birtist eftirfarandi box:
- Þú þarft að ákveða hvort þú vilt halda bókuninni í stundaskrá kennarans, svo hægt sé að setja inn nýjan nemanda, eða hvort þú viljir fjarlægja bókunina alveg.
Hvað gerist ef ég vel"Fjarlægja námsgrein frá nemanda" í stað "Afskrá nemanda úr áfanga?"
Ef þú velur Fjarlægja námsgrein frá nemanda :
- Áfanganum verður eytt frá prófíl nemandans og ekki hægt að finna hann aftur, jafnvel þó hakið við Virk reitinn sé fjarlægt undir Kennsla hjá nemendanum.
- Áfanginn hverfur úr listum og tölfræði
- Gjaldið fyrir nemandann hverfur og ekki er hægt að rekja það í kerfinu nema í þeim reikningsgögnum sem þegar hafa verið send af stað
- Þesss aðgerð er ekki hægt að afturkalla, né ekki hægt að endurheimta þær upplýsingar sem var eytt