Greinar um þetta efni

Staðfesta námspláss (endurinnritun)

Hvað? Með stillingum og sjálfvirkum tölvupóstsendingum getur þú hvatt forráðamenn til að fara inn og staðfesta námspláss nemenda á ákveðnu tímabili.

Af hverju? Til að staðfesta að nemendur vilji halda áfram í sínum áföngum og losa pláss þar sem nemendur vilja ekki halda áfram.

Hvernig? Til að fá aðgang að eiginleikanum Endurinnritunarstillingar þarftu að hafa samband við SpeedAdmin þjónustuver.

Þegar eiginleikinn er virkur birtist hann undir Stillingar > Námsframboð

Skref 1: Stilltu tímabil

Smelltu á Endurinnritunarstillingar.

Smelltu á hnappinn "Setja dagsetningar" hægra megin til að setja endurinnritunartímabilið.

Skref 2: Stofnaðu áminningu

  1. Smelltu á "+ Stofna" til að setja upp áminningu sem er send sjálfkrafa til forráðamanna
  2. Gefðu áminningunni nafn
  3. Stilltu hversu marga daga fyrir lokadag áminningin á að vera send út
  4. Veldu hvaða tölvupóstsniðmát á að nota fyrir áminninguna (ath. hér þarf að vera búið að búa til sniðmát)
  5. Smelltu á "Stofna"

Ef ekki er búið að búa til sniðmát er hægt að smella á táknið við hliðina á Sniðmát til að fara yfir í Tölvupóst- og SMS-sniðmát síðuna þar sem hægt er að búa til, breya eða velja sniðmát.

Sýn forráðamanna

Á upphafsdegi endurinnritunar birtist borði með textanum Endurinnritun er opin bæði fyrir virkt nám og biðlista á upphafssíðu forráðamanns. (Ath. eiginleikinn F_WAITINGLIST_REREGISTRATION þarf að vera virkjaður til að endurinnritun fyrir biðlista sjáist).

Þegar forráðamaður smellir á borðann kemur upp gluggi með valmöguleika fyrir hverja námsgrein. Undir Staðfest seinast má sjá hvenær er seinast hægt að taka afstöðu.

Umsjón með endurinnritun

Í Innbakkanum - "Staðfesta pláss - svörun" getur þú sem ofurnotandi séð hvaða nemendur hafa ekki enn staðfest eða hvort að nemandinn óskar eftir að hætta. Hér hefur þú möguleika á að staðfesta pláss handvirkt eða afskrá nemendur.

Í flipanum "Þarf að afskrá" finnur þú nemendur sem hafa sagðu upp sínu plássi í gegnum endurinnritun og getur afskráð alla í einu eða hluta. Annaðhvort með því að skrá lokadag eða að nemendur hætti í lok tímabilsins.

Í flipanum "Engin viðbrögð" sérðu nemendur sem ekki hafa gefið svar í endurinnritun. Hér getur þú endurinnritað marga nemendur í einu eða afskráð. Einnig er hægt að smella á punktana þrjá hægra megin á línu nemanda til að fá upp sama glugga og forráðamaður fær og staðfest plássið fyrir forráðamanninn. Þá fer sjálfvirkt tilkynning út til forráðamanns um hvaða val hefur verið gert.

Spurningar og svör um Staðfesta pláss (endurinnritun)

Hvað gerist með bókanir sem hafa lokadag?

Bókanir sem hafa lokadag koma ekki upp í Endurinnritun.

Hvað gerist með bókanir sem nemandi verður of gamall fyrir?

Ef nemandi verður of gamall fyrir bókunina á almanaksárinu þegar endurinnritunin á sér stað, kemur upp tilkynning um að ekki sé hægt að staðfesta plássið.

Þurfa nemendur sem ekki hafa hafið nám enn þá (upphafsdagur er í framtíðinni) einnig að staðfesta pláss?

Nei, ef nemandi hefur upphafsdag í framtíðinn eða ef nemandi skráði sig eftir að endurinnritun hófst kemur áfanginn ekki með í gluggann fyrir Staðfesta pláss.

 

Tengdar leiðbeiningar

Ef þú vilt einnig að forráðamenn staðfesti biðröðarnámspláss nemenda skaltu lesa meira í leiðbeiningunni Staðfesta sæti á biðlista.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg