Grunngögn > Stillingar fyrir umsóknir og endurinnritun
Efst til hægri á skjánum finnur þú þrjá hlekki:
- Hlekk fyrir núverandi nemendur
- Hlekk fyrir nýja nemendur, sem þú getur sett á heimasíðu skólans
- Prufuumsóknarhlekkur er ætlaður ofurnotendum til að prófa umsóknarsíðuna og hér er síðan einnig sett upp. Prufuhlekkurinn geymir heldur ekki þær upplýsingar sem er settar inn. Man einungis fyrra val, og efst í hægra horni síðunnar er hægt að smella á ”Byrja upp á nýtt/Eyða öllu”, þá hreinsast umsóknin.
Reitir
Grunngögn > Stillingar fyrir umsóknir og endurinnritun > Reitir
Hér er þeir reitir sem nemendur og forráðamenn þurfa að fylla út í umsókn.
Vinstri dálkurinn inniheldur virka reiti sem eru á gagnakorti nemanda og forráðamanna, auk spurninga sem hægt er að bæta við neðst á reitarlista.
Smelltu á "Breyta" til að sníða reitina að þínum skóla.
Það er hægt að draga reitina upp og niður til að breyta röð þeirra. Síðan er hægt að ákveða hvort að það þurfi að útfylla reitinn (í umsókn) og einnig hvort að það þurfi að staðfesta reitinn (í endurinnritun). Ef það er hak við reitinn er nauðsynlegt að fylla reitinn út og ekki hægt að ljúka umsókn fyrr en hann er útfylltur. Til að notandinn fá góða upplifun af umsókn/endurinnritun er mikilvægt að hafa þetta í huga.
Þegar búið er að breyta einhverju í reitarsettinu verður að smella á Vista.
Það er síðan hægt að bæta við öðru reitarsetti með því að smella á hnappinn:
Eða afrita reitarsett sem nú þegar er til með því að smella á:
Á gagnakorti hvers náms er síðan hægt að velja hvaða reitarsett á að nota. T.d Gæti verið óþarfi að gefa upp símanúmer og heimilisfang í fiðlunámi og þá er hægt að búa til nýtt reitarsett sem ekki inniheldur símanúmer og heimilisfang og velja það síðan á gagnakorti fiðlunámsins.
Bæta við spurningum
Áður en að hægt er að bæta við spurningu í reitarsettið þarf að setja spurninguna í textaform og skilgreina hvers konar svar þessi spurning leyfir.
Til að stofna og bæta við spurningu við reitarsettið þarftu að:
- Neðst í hverju reitarsetti er partur sem heitir „Spurningar“. Til að bæta við spurningu smellið á blýantstáknið
- Í „Breyta spurningu“ valmyndinni, er spurningin sett inn í reitinn „Nafn reits“. Undir „Tegund reits“ getur valið skilgreiningu á svarinu. T.d. Stuttur texti eða dagsetning
- Þegar búið er að útfylla þessa reiti er smellt á „Setja inn“ og þá er búið að setja spurninguna í „pottinn“ og síðan er hún valinn í fellivalmyndinni undir því reitarsetti, þar sem á að nota hana.
- Ekki gleyma að vista!
Skráningarhæft nám
Undir skráningarhæft nám er auðveldlega hægt að virkja eða óvirkja nám á fljótlegan hátt. T.d ef nám á að óvirkja í stuttan tíma. Það er gert með því að velja Nei undir "Leyfa umsókn". En ef nám hefur rautt x tákn undir "Birtist í skráningartrénu" þarf að smella á "Velja" og bæta því við skráningartréð, um leið og þú bætir því við er það orðið sýnilegt aftur.
Skráningartré
Skráningartréð leiðir nemandann/forráðamanninn í átt að því sem hann/hún leitar eftir.
Hægt er að:
- Breyta röð í skráningartré með því að draga og sleppa möppu. Bæði upp og niður.
- Breyta texta með því að smella á blýantastáknið
- Bæta við grein sem ”undirgrein” með því að smella á plústáknið
- Eyða grein (og öllum undirgreinum) með því að smella á X
Með því að smella á Velja nám við grein er hægt að velja hvaða námsgreinar eiga að vera undir þeirri grein í glugganum ”Nám”.
Í glugganum ”Aðgerðir” er hægt að gera grein óvirka svo hún birtist ekki í umsókn. Einnig er hægt að setja inn lýsingu fyrir einstaka grein.
Mundu að smella á VISTA eftir að breytingar hafa verið gerðar!
Grunngögn > Nám > Velja nám > Flipinn Skráningartré
Flipinn sýnir hvar námið birtist í skráningartrénu. Hægt er að setja nám í fleiri en eina grein. Hvaða leið forráðamenn/nemendur koma að náminu er ekki geymt.
Þegar breytingar o.fl. er gerðar, þarf að ýta á „Vista“ efst á síðunni. Það er einnig hægt að prófa skráningartréð sem gefur þér færi að sjá hvernig það lítur út.
Aðeins er hægt að velja greinina ef hún inniheldur nám sem er opið fyrir umsóknir
Námstakmarkanir
Undir þessum flipa er hægt að hópa saman nám sem á að hafa takmarkanir. Hægt er að takmarka aldur og fjölda umsókna. Ef um aldurstakmarkanir er að ræða geta nemendur einungis sótt um ef þeir eru á réttum aldri. Ef um fjöldatakmörkun er að ræða er aðeins hægt að sækja um ákveðinn fjölda náms, af þeim sem eru hópuð saman. T.d ef fjöldatakmörkunin er tveir og tíu nám eru sett í fjöldatakmörkunarhóp, er einungis hægt að skrá sig í tvö af þeim.
Textar
Grunngögn > Stillingar fyrir umsóknir og endurinnritun
Hér er hægt að breyta textum sem eru notaðar í tengslum við umsóknir og endurinnritun. Alla texta ætti að fara í gegnum reglulega, svo það sé öruggt að notendur fái réttar upplýsingar.
Hljóðfæraleiga
Ef boðið er upp á hljóðfæraleigu, verður að virkja það og bæta við reitum/spurningum sem þarf að fylla út fyrir þann hluta. Hafðu í huga að allar hljóðfæraleiguumsóknir sem bætt er við umsókn munu birtast í verkefnabakkanum í SpeedAdmin, efst í hægra horni.
Hægt er að vinna úr öllum umsóknum í sérsniðinni valmynd í SpeedAdmin.
Einnig þarf að bæta hljóðfæraleigu við sem hluta af uppsetningu umsóknarsíðunnar.
Skoða Nám
Þegar verið er að setja upp umsóknarsíðu er góð hugmynd að fara yfir námsgreinarnar og athuga hvort að allt sé eins og það á að vera.
- Er opið fyrir umsóknir/endurinnritun (í flipanum Námstegund)
- Skráningartré
- Lýsing. Það er góð hugmynd að gera stutta lýsingu af nám/hljóðfæri. E.t.v. Hvenær kennt, verð og fl.
- Undirflokkur (ef það er notað)